Archive for the ‘MSc.’ Category

Búinn!

Nú hef ég skilað MSc. ritgerðini. Það er skrítið, ég þjáist af samviskubiti yfir því að vera ekki að læra en það er ekkert sem ég á að vera að gera. Ef einhvern vantar jarðfræðing, sagnfræðing, vélvirkja eða allt af þessu í vinnu þá má viðkomandi láta mig vita.
Fyrirlestur 5. júní, klukkan 12:15 í sal [...]

May 26, 2009 • Posted in: MSc. • 4 Comments

Duglegir menn

Ég var að lesa mjög góða grein í Dagblaðinu Nei. Ég held að duglegir menn hafi sett okkur á hausinn.
Annars ferst mér að vera að tala um dugnað, búinn að sitja á hverjum degi fram á kvöld í þrjár vikur við að klára ritgerðina mína. Skila af mér næsta föstudag. Að því loknu ætla ég [...]

May 18, 2009 • Posted in: Kreppa, MSc. • No Comments

Vorverkin

Í bloggi sem ég birti þremur og hálfum mánuði sagðist ég ætla að setja íbúðina mína á sölu. Núna síðastliðinn mánudag skrifaði ég undir sölusamning. Ekki var það samt svo gott að íbúðin seldist ein og sér heldur settum við Charlotta hana upp í 80 ára gamalt einbýlishús á Norðurbraut í Hafnarfirði. Afhending á báðum [...]

May 7, 2009 • Posted in: Fasteignir, MSc. • 4 Comments

Heimildir

Það rifjast nú upp fyrir mér sem fór hvað mest í taugarnar á mér þegar ég var að skrifa BA ritgerðina, og það er að geta ekki sagt neitt nema vísa til heimilda. Kannski er ég að tala um eitthvað sem ég bara veit og jafnvel allir vita, en svo þarf maður að grafa upp [...]

February 24, 2009 • Posted in: Ferðalög, MSc. • No Comments

Bið

Það er alveg sorglegt hvað mikil tími fer bið. Í dag mun ég væntanlega ná að vinna klukkustundar vinnu en til þess þarf ég að keyra í þrjá tíma og bíða í aðra þrjá.
Viðbót. Þessa mynd tók ég uppi á Pokahrygg að Fjallabaki í ofsalegu roki og moldastrókarnir stóðu upp milli hæðanna fyrir neðan.

February 18, 2009 • Posted in: MSc. • No Comments

Ábending

Stundum þarf einhver annar að benda manni á augljósu hlutina. Ég er í óttalegum vandræðum með þetta forrit sem ég þarf að notað og gat hvergi fundið leiðbeiningar sem mig minnir að ég hafi fengið á námskeiði úti í Lundi.  Það var svo doktor heimilinsins sem benti mér á að senda bara póst á kennarann [...]

February 9, 2009 • Posted in: MSc. • No Comments