Archive for the ‘Kreppa’ Category
Duglegir menn
Ég var að lesa mjög góða grein í Dagblaðinu Nei. Ég held að duglegir menn hafi sett okkur á hausinn.
Annars ferst mér að vera að tala um dugnað, búinn að sitja á hverjum degi fram á kvöld í þrjár vikur við að klára ritgerðina mína. Skila af mér næsta föstudag. Að því loknu ætla ég [...]
Lögguhyski
Mikið ofboðslega fyrirlít ég þetta löggudrasl sem er núna að berja hústökufólkið niðri í bæ. Heilalaust lið sem gerir allt fyrir sjálfstæðisflokkinn og útrásarvíkingana. Aldrei skal ég fara að tilmælum lögreglunnar.
Útlendingar
Ég heyrði í útvarpinu í dag að einhver sérfræðingur teldi mikla hættu á þjóðrembu og óvild í garð útlendinga í kjölfarið á hruninu á Íslandi. Það þykir mér merkilegt, ég er miklu frekar haldin óvild í garð Íslendinga í kjölfarið á hruninu.
Draumastarf
Mig dreymdi í nótt að ég væri aftur farinn að vinna í járnblendinu. Það væri nú alveg stórkostlegt að þurfa að skríða aftur þangað með skottið á milli lappana.
Helv***s bankaliðið
Jæja, nú er búið að hafa af mér viðbótalífeyrissparnaðinn sem átti að redda mér fram á vorið. Mig langar að segja svo margt ljótt núna að líklega er best að ég segi ekki neitt.
Kjarninn
Ég vissi alveg að ég þyrfti ekki að horfa á Davíð í gær. Ef hann myndi segja eitthvað merkilegt þá gæti ég ekki annað en frétt af því. Og svei mér þá, ég held bara að hann hafi einmitt sagt svolítið merkilegt í gær. Að sjálfsögðu er endursögnin í útvarpinu óttalegt prump en hér er Baldur [...]
