Archive for the ‘Jeppar’ Category
Viðbót
Hann var vel klakabrynjaður í morgun hann Léttfeti og ferðalúinn eftir helgina. Enda þurfti hann að þola töluvert í gær m.a. einn útaf akstur fram af mjög háum vegkanti og töluvert skaflaspól. Niðurstaðan var eiginlega sú að nauðsynlegt væri að eiga nagladekk og þá nagladekk númer 38, sjá hér.
Kíkt í skúrinn
Nú um helgina kíkti ég í skúrinn hjá Helga, frænda Charlottu, til að kíkja á lífstíðarverkefnið hans. Þar mátti sjá Landcruiser HJ61 árgerð 87 í breytingu fyrir 46″ dekk. 46″ dekk eru gríðarlega stór og eins og við mátti búast vindur verkefnið endalaust upp á sig hjá honum. Hér má sjá myndir af framkvæmdum.
En tilgangurinn [...]
