Archive for the ‘Fasteignir’ Category

Vorverkin

Í bloggi sem ég birti þremur og hálfum mánuði sagðist ég ætla að setja íbúðina mína á sölu. Núna síðastliðinn mánudag skrifaði ég undir sölusamning. Ekki var það samt svo gott að íbúðin seldist ein og sér heldur settum við Charlotta hana upp í 80 ára gamalt einbýlishús á Norðurbraut í Hafnarfirði. Afhending á báðum [...]

May 7, 2009 • Posted in: Fasteignir, MSc. • 4 Comments

Hafnarfjörður

Nú lítur allt út fyrir að ég verði orðinn Hafnfirðingur næsta haust. Er þá ekki bara málið að skrá sig í björgunnarsveitina, fara að halda með FH (eða Haukum, veit ekki alveg hvoru hverfið tilheyrir)og verða gríðar hörundssár yfir öllum Hafnarfjarðarbröndurum.

Framkvæmdir

Á laugardaginn var sannkallað ættarmót í íbúðinni minni. Allir að skúra, ryksuga, skipta um klósett eða þvælast fyrir. Þrátt fyrir að vera í grunninn ákaflega ógeðfellt verk að skipta út gömlu, brotnu og skítugu klósetti gekk þetta bara vel. Eina vesenið var að fá alla nýju hlutina til að passa saman, kostaði nokkrar ferðir út [...]

March 16, 2009 • Posted in: Fasteignir • No Comments

Fasteignir

Ég hef ákveðið að beita mér fyrir endurreisn hins íslenska fasteignamarkaðs með því að setja íbúðina mína á sölu. Áhugasamir kaupendur vinsamlegast hafið samband í kommentakerfi.