Archive for the ‘Daglegt líf’ Category

Hafnarfjörður

Nú lítur allt út fyrir að ég verði orðinn Hafnfirðingur næsta haust. Er þá ekki bara málið að skrá sig í björgunnarsveitina, fara að halda með FH (eða Haukum, veit ekki alveg hvoru hverfið tilheyrir)og verða gríðar hörundssár yfir öllum Hafnarfjarðarbröndurum.

Draumastarf

Mig dreymdi í nótt að ég væri aftur farinn að vinna í járnblendinu. Það væri nú alveg stórkostlegt að þurfa að skríða aftur þangað með skottið á milli lappana.

March 25, 2009 • Posted in: Daglegt líf, Kreppa • 3 Comments

Helv***s bankaliðið

Jæja, nú er búið að hafa af mér viðbótalífeyrissparnaðinn sem átti að redda mér fram á vorið. Mig langar að segja svo margt ljótt núna að líklega er best að ég segi ekki neitt.

March 22, 2009 • Posted in: Daglegt líf, Kreppa • One Comment

Atvinnusjúkdómurinn

Fór til læknis í gær út af asmanum sem ég nældi mér í með því að vinna aðeins of mörg sumur í stóriðjunni. Þar kom í ljós að lungnavirknin hefur alls ekkert versnað og er enn vel yfir meðalagi. Það eru mjög góðar fréttir.
Leiðinlegt að líklegast losna ég aldrei við þetta.

March 6, 2009 • Posted in: Daglegt líf • No Comments

Samráð

Pælið í því að Samkeppniseftirlitið skuli vera að rannsaka Bændasamtökin fyrir ólöglegt samráð. Íslenskar eftirlitsstofnanir eru náttúrlega brandara. Þetta hefst upp úr því að ráða alltaf pólitíska félaga í allar stöður en aldrei út frá faglegum forsendum.

Góður dagur

Ég vona að við getum öll tekið undir með Ice Cube um að dagurinn í dag hafi verið góður. Að minnsta kosti getur maður ekki ályktað annað miðað við fréttirnar. Fyrsta frétt klukkan 10 var að Ingibjörg ætlaði að hitta einhvern sænskan kolleka sinn í bláa lóninu til að spjalla. Fyrsta frétt klukkan 12 var að [...]