Archive for the ‘Almennt nöldur’ Category
Megrun
Samkvæmt þessu var megrunarlausi dagurinn í gær. Megrunarlausi dagurinn er sniðugt fyrirbæri, hann er einslags uppskeruhátíð ofsafeitra þar sem góðum árangri á heimslista BMI er fagnað. En betur má ef duga skal, við erum ekki einu sinni komin í 16 sæti heldur sitjum í því 17.
Það gæti verið sniðug hugmynd að fjölga slíkum dögum. Hvernig væri [...]
1. Maí
Voðalega er það öfugsnúið að tengja verkalýðsfélög við 1. maí. Auðmanna meðvirknin og evrópusambands ástin er svo mikil í þessum klúbbum að venjulegt fólk hefur ekkert þangað að gera.
Lögguhyski
Mikið ofboðslega fyrirlít ég þetta löggudrasl sem er núna að berja hústökufólkið niðri í bæ. Heilalaust lið sem gerir allt fyrir sjálfstæðisflokkinn og útrásarvíkingana. Aldrei skal ég fara að tilmælum lögreglunnar.
Markaðsrannsóknir
Það er meiri plágan allar þessar markaðsrannsóknir sem háskólinn sendir á háskólapóstinn. Þetta eru yfirleitt einhverjir krakkar að klára lokaverkefni í einhverju skíta markaðs eða viðskiptafræðinámi styrkt af stórfyrirtækjum. Þetta á ekkert skylt við vísindi heldur einfaldlega fyrirtæki að verða sér út um upplýsingar um eftirsóttan markaðshóp án þess að borga fyrir nema smáaura. Háskólinn [...]
Verkarinn
Mikið er það brjálæðislega fyndið að jólasveininn hjá ASÍ þykist vera fúll út í eigendur Granda. Fyrst berst hann hatramlega fyrir lækkun launa hjá verkafólki og svo lætur hann eins og hann sé hissa á því að peningurinn sé þá bara settur í eitthvað annað.
Skrilljón ný störf
Voðalega finnst mér það alltaf vafasamt þegar stjórnvöld fara að lofa nýjum störfum. Ef einhver störf kom út úr svona þá eru þau yfirleitt alls ekki störf sem bera sig, munu bara vera baggi á þjóðfélaginu.
Ríkið á ekki að redda störfum heldur á ríkið að sjá til þess að umhverfið drepi ekki störfin. Ekki annað [...]
