Vorverkin
Í bloggi sem ég birti þremur og hálfum mánuði sagðist ég ætla að setja íbúðina mína á sölu. Núna síðastliðinn mánudag skrifaði ég undir sölusamning. Ekki var það samt svo gott að íbúðin seldist ein og sér heldur settum við Charlotta hana upp í 80 ára gamalt einbýlishús á Norðurbraut í Hafnarfirði. Afhending á báðum eignum verðu 1. júní, 11 dögum eftir að ég verð að skila MSc ritgerðinni. Nóg að gera.

Stofan á Hellu. Canon 350D, EF 24 f/2.8

4 Responses to “Vorverkin”
Lalli - May 7, 2009
Þetta var kallað veldi hér áður fyrr, veldi á kallinum. Eiga einbýlishús í Hafnarfirðinum. Þú verður að leyfa okkur útlendingunum að sjá dýrðina við tækifæri.
Sverrir Aðalsteinn - May 8, 2009
ekkert mál, þegar sóttkvínni verður aflétt af ykkur er um að gera að kíkja
sandra - May 18, 2009
Til hamingju, ég vona að við Hafnfirðingurinn förum þá að sjá meira af þér..!
Sverrir Aðalsteinn - May 19, 2009
það er ekki ósennilegt, ekki síður þegar ég verð búinn að skila ritgerðinni sem á að vera núna á föstudaginn
Comments are closed for this entry.