Archive for April, 2009
1. Maí
Voðalega er það öfugsnúið að tengja verkalýðsfélög við 1. maí. Auðmanna meðvirknin og evrópusambands ástin er svo mikil í þessum klúbbum að venjulegt fólk hefur ekkert þangað að gera.
Óvinir
Hefði það ekki verið minna mál fyrir framsókn að gera lista yfir vinveitta bloggara en óvinveitta. Bara pæling.
Kosningar
Er ekki málið að kjósa bara í júróvisjón þetta árið.
Gluggagægjur
Ætli auglýsingastofan sem gerði gluggagægju auglýsinguna fyrir bæði framsókn og íhald hafi fengið borgað frá báðum. Ætli sjallarnir hafi ekki bara keypt notaða hugmynd á afslætti, enda á hausnum eftir síðasta klúður.
Vatnsstígur
Hitti í gær mæddan aðgerðarsinna sem skrapp með mér að skoða rústirnar á Vatnstígnum. Lýsingarnar voru dramatískar. Piðarúðinn, eða táragas en það er alveg ljóst, í loftinu var svo mikill að fólk kúgaðist og ældi. Af neðri hæðinni barst ærandi hávaði þegar löggan sagaði húsið í sundur undir fótunum á fólkinu. Piparúða sprautað tilviljunarkennt í [...]
Lögguhyski
Mikið ofboðslega fyrirlít ég þetta löggudrasl sem er núna að berja hústökufólkið niðri í bæ. Heilalaust lið sem gerir allt fyrir sjálfstæðisflokkinn og útrásarvíkingana. Aldrei skal ég fara að tilmælum lögreglunnar.
