Hurð nærri hælum

Þarna muaði litlu, ég var næstum því farinn að skrifa um skuldauppgjöf framsóknarmana sem hinn nýji Frankenstein íhaldsins var að hvetja til í sjónvarpinu í gær, enda vanur að láta gefa upp skuldir sínar. En svo áttaði ég mig og ákvað þess í stað að skrifa um styttuna sem má sjá hér fyrir neðan.

Þetta var tæplega mannhæðar hár rekaviðardrumbur við ströndina á Kvadehuksletta á Svalbarða. Þetta var mjög norðarlega skammt frá Nýja-Álasund. Nýja-Álasund er líklega nyrðsti bær í heimi og mjög sérstakur, en ég ræði um hann seinna. Kvadehuksletta var eyðilegt nes, opið fyrir norðri, verstri og suðri, kuldalegt að næðingsamt. Þar er að finna rústir kofa frá rússneskum gildruveiðimönnum sem sátu þarna langt frá öllu, í svarta myrkri heimskautavetrarins og skáru út rekaviðardrumb. Ég held að þessi rekaviðarkona á þessum stað hafi verið það eyðilegasta sem ég hef séð á æfinni.

kona2-web.jpg

Kona, Svalbarða. Canon 350D, EFs 18-55 f/3.5-5.6 II

March 17, 2009 • Posted in: Ferðalög

2 Responses to “Hurð nærri hælum”

  1. Lalli - March 18, 2009

    Þetta er töff mynd og líklega ekki margir sem hafa fest þetta á filmu.

  2. Sverrir Aðalsteinn - March 18, 2009

    Þetta var mjög sérstakur staður. Ég gleymdi að nefna að þarna hafði verið lögð flugbraut í kalda stríðinu í einhverjum njósna/olíuleitar tilgangi. Samt var ekki settur alvöru flugvöllur á Svalbarða fyrr en seint og um síðir, á níunda eða tíunda áratugnum minnir mig. Námamennirnir sem unnu á Svalbarða á 20 öld höfðu enga leið til að komast burt nema með vorskipinu.

Comments are closed for this entry.