Sjálfsmynd

Nú er ritgerðarsmíð á fullum gangi og því heilla allar mögulegar truflanir mjög mikið. í gær sá ég umræðu á ljósmyndadellusíðu um þessa mynd sem ljósmyndarinn Steve McCurry tók í Pakistan. Þetta er gríðalega flott mynd og mig langaði að prufa hvort ég gæti fengið svipað lúkk.

Hér er svo afraksturinn. Ég tek fram að nefið á mér er ekki svona stórt, ég gat bara því miður ekki komist lengra frá myndavélinni af því að ég á ekki fjarstýringu. En mér finnst þetta samt alveg sæmilegt.

sverrir3-web.jpg

Sjálfsmynd. Canon 350D, EF 50 f/1.8 II

March 6, 2009 • Posted in: Ljósmyndun

Comments are closed for this entry.