Faglegur metnaður
Hvað í ósköpunum fær virta fréttamenn til að leika í símaauglýsingu. Hvað varð um faglega metnaðinn. Heldur fólkið að það muni ekki vera neitt mál að byggja aftur upp virðingu og trúverðuleika?
Munið þið eftir ungu konunni sem sat á Mokka og sagði allri þjóðinni í trúnaði að við ættum að fá meira út úr bankaviðskiptum okkar. Ég held að henni hafi ekki gengið neitt sérstaklega vel að láta taka sig alvarlega sem rithöfundur eftir það.

Sker við Surtsey. Canon 350D, EF 70-210 f/3.5-4.5
March 3, 2009
• Posted in: Almennt nöldur

3 Responses to “Faglegur metnaður”
Halli - March 3, 2009
Ég á miklu mun auðveldara með að sjá í gegnum fingur mér með Gerði Kristnýju heldur en þessa fréttamenn sem þú nefnir.
Það er talsvert ólíku saman að jafna trúverðugleika í fréttamennsku annars vegar og skáldskap/ ljóðagerð/ léttum pistlaskrifum hins vegar.
Ég þarf t.d. hvorki að treysta því sem fram kemur í skáldsögum né bera virðingu fyrir persónu höfundar til þess að hafa ánægju af verkum hans.
Fín mynd.
Sverrir - March 3, 2009
Það er alveg rétt.
Sérstaklega þurfa fréttamenn að passa sig núna að sýna að ekki sé hægt að stjórna þeim, með peningum eða öðru.
Gerður greyið var bara tekin sem dæmi af því að auglýsingin sem hún var í var svo átakanlega asnaleg og ég held að hún sjái eftir þessu.
Halli - March 3, 2009
Þetta var óneitanlega slæm auglýsing og óþarfa sell-át hjá annars viðkunnanlegri manneskju.
Hún sýndi reyndar netta eftirsjá vegna auglýsingarinnar í október sl., sagðist hafa þurft á peningunum að halda: http://visir.is/article/20081011/SKODANIR06/695040982/1225
Sem er auðvitað engin afsökun, og teldist fullkomlega banalt ef um fréttamann væri að ræða.
Comments are closed for this entry.