Archive for March, 2009
Útlendingar
Ég heyrði í útvarpinu í dag að einhver sérfræðingur teldi mikla hættu á þjóðrembu og óvild í garð útlendinga í kjölfarið á hruninu á Íslandi. Það þykir mér merkilegt, ég er miklu frekar haldin óvild í garð Íslendinga í kjölfarið á hruninu.
Viðbót
Hann var vel klakabrynjaður í morgun hann Léttfeti og ferðalúinn eftir helgina. Enda þurfti hann að þola töluvert í gær m.a. einn útaf akstur fram af mjög háum vegkanti og töluvert skaflaspól. Niðurstaðan var eiginlega sú að nauðsynlegt væri að eiga nagladekk og þá nagladekk númer 38, sjá hér.
Skagafjörður
Skrapp með Márusi bróður norður í Skagafjörð um helgina. Þar vorum við boðnir í tvöfallt þrítugsafmæli. Afmælið fór vel fram. En það verður að viðurkennast að það var hálfgert vesen að keyra aftur suður í gær, vont að Blönduósi og verulega vont á Þverárfjalli.
En við löbbuðum inn í dal á laugardaginn okkur til skemmtunnar. Það [...]
Draumastarf
Mig dreymdi í nótt að ég væri aftur farinn að vinna í járnblendinu. Það væri nú alveg stórkostlegt að þurfa að skríða aftur þangað með skottið á milli lappana.
Helv***s bankaliðið
Jæja, nú er búið að hafa af mér viðbótalífeyrissparnaðinn sem átti að redda mér fram á vorið. Mig langar að segja svo margt ljótt núna að líklega er best að ég segi ekki neitt.
Verkarinn
Mikið er það brjálæðislega fyndið að jólasveininn hjá ASÍ þykist vera fúll út í eigendur Granda. Fyrst berst hann hatramlega fyrir lækkun launa hjá verkafólki og svo lætur hann eins og hann sé hissa á því að peningurinn sé þá bara settur í eitthvað annað.
