Archive for January, 2009

Hvaða rugl

Er ekki bara best að leyfa framsókn að fara í stjórn með sjöllunum fram að kosningum, það er hvort sem er það sem þeir vilja.
Hér læt ég fylgja mynd af refagildru á Svalbarða. Gildran virkaði þannig að flekinn var festur upp með tveimur spýtum og lauslega festar saman með þriðju spýtunni og agna sett á [...]

Hlaut að vera

Auðvitað var ég að misskilja Ingibjörgu, stundum læt ég eins og ég sé að byrja að fylgjast með pólitík. Fólk er aldrei að meina það sem það segir.

January 27, 2009 • Posted in: Pólitík • No Comments

Kíkt í skúrinn

Nú um helgina kíkti ég í skúrinn hjá Helga, frænda Charlottu, til að kíkja á lífstíðarverkefnið hans. Þar mátti sjá Landcruiser HJ61 árgerð 87 í breytingu fyrir 46″ dekk. 46″ dekk eru gríðarlega stór og eins og við mátti búast vindur verkefnið endalaust upp á sig hjá honum. Hér má sjá myndir af framkvæmdum.
En tilgangurinn [...]

Fasteignir

Ég hef ákveðið að beita mér fyrir endurreisn hins íslenska fasteignamarkaðs með því að setja íbúðina mína á sölu. Áhugasamir kaupendur vinsamlegast hafið samband í kommentakerfi.

Engin breyting

Ingibjörg Sólrún vill halda áfram með íhaldinu og samkvæmt fréttunum eru þingmennirnir sama sinnis. Ég vona að þetta sé misskilningur hjá mér.
 

Lappi. Canon 350D, EF 24 f/2,8

January 22, 2009 • Posted in: Pólitík • One Comment

Ný síða, nýtt Ísland

Nú hefur Óli.is endurbyggt bloggsíðuna mína. Ólafur er góður maður. Nú verður maður bara að standa í blogginu.
Ég ætla að taka upp þá nýbreytni að hafa alltaf mynd með hverri bloggfærslu og ekkert endileg tengda efni færslunnar.

January 22, 2009 • Posted in: Uncategorized • One Comment