Sólbakur

Ég er ekki alveg nógu vel inni í þessu máli þarna á Akureyri en eitt hef ég þó heyrt sem skipar mér algerlega í stuðningslið Sjómannasambandsins. Formaður Sjómannasambandsins sagði í fréttum í gær að í þessum nýja samningi væri skilyrði um að menn megi ekki vera í stéttarfélagi til að fá pláss á skipinu.
Eftir að hafa heyrt þetta skiptir ekki máli þó að restin af samning segir, þó hann hljóði uppá jeppa að eigin vali fyrir hvern áhafnarmeðlim og ellilífeyri á tvöföldum launum frá og með 45 ára aldri þá má það einfaldlega ekki vera til umræðu. Það er raunveruleg afturför um tæplega hundrað ár ef vinnuveitendur fara að geta bannað fólki að vera í stéttarfélögum.

Útgerðamaðurinn hefur ekkert leyfi til að setja svona skilyrði og sjómennirnir á bátnum hafa heldur ekkert leyfir til að skrifa undir.

Vegna þessa atriðis lýsi ég yfir algerum stuðningi við sjómenn. Ef þetta einstaka atriði er misskilningur er ekki ósennilegt að ég muni samt sem áður lýsa yfir algerum stuðningi, það mun bara krefjast svolítið meiri athugunnar á málinu

October 7, 2004 • Posted in: Uncategorized

2 Responses to “Sólbakur”

  1. jakob - October 7, 2004

    Þú meinar líklega að þú lýsir yfir stuðningi við alla sjómenn nema þá á Sólbaki.

  2. Sverrir - October 7, 2004

    Já, líklega má túlka orð mín þannig.

    Enda tel ég að sjómenninrnir á Sólbaki hafi gert í brækurnar.

Comments are closed for this entry.