Óvinir
Hefði það ekki verið minna mál fyrir framsókn að gera lista yfir vinveitta bloggara en óvinveitta. Bara pæling.

Hestur. Canon 350D, EF 50 f/1.8 II
Kosningar
Er ekki málið að kjósa bara í júróvisjón þetta árið.

Fjallganga á Svalbarða. Canon 350D, EFs 18-55 f/3.5-5.6 II
Gluggagægjur
Ætli auglýsingastofan sem gerði gluggagægju auglýsinguna fyrir bæði framsókn og íhald hafi fengið borgað frá báðum. Ætli sjallarnir hafi ekki bara keypt notaða hugmynd á afslætti, enda á hausnum eftir síðasta klúður.

Örn. Canon 350D, EF 24 f/2.8
Vatnsstígur
Hitti í gær mæddan aðgerðarsinna sem skrapp með mér að skoða rústirnar á Vatnstígnum. Lýsingarnar voru dramatískar. Piðarúðinn, eða táragas en það er alveg ljóst, í loftinu var svo mikill að fólk kúgaðist og ældi. Af neðri hæðinni barst ærandi hávaði þegar löggan sagaði húsið í sundur undir fótunum á fólkinu. Piparúða sprautað tilviljunarkennt í allar áttir. Allt brotið, allt eyðilagt og allt lagt í rúst.
Niðri í götunni stóð eigandinn og hló, sagði að löggan væri að vinna vinnuna fyrir sig, þyrfti ekki að rífa húsið sjálfur.

Snæfell og Man. Canon 350D, EF 24 f/2.8
Lögguhyski
Mikið ofboðslega fyrirlít ég þetta löggudrasl sem er núna að berja hústökufólkið niðri í bæ. Heilalaust lið sem gerir allt fyrir sjálfstæðisflokkinn og útrásarvíkingana. Aldrei skal ég fara að tilmælum lögreglunnar.

Móberg í Surtsey. Canon 350D, EF 70-210 f/3.5-4.5
Markaðsrannsóknir
Það er meiri plágan allar þessar markaðsrannsóknir sem háskólinn sendir á háskólapóstinn. Þetta eru yfirleitt einhverjir krakkar að klára lokaverkefni í einhverju skíta markaðs eða viðskiptafræðinámi styrkt af stórfyrirtækjum. Þetta á ekkert skylt við vísindi heldur einfaldlega fyrirtæki að verða sér út um upplýsingar um eftirsóttan markaðshóp án þess að borga fyrir nema smáaura. Háskólinn á ekki að leggjast svo lágt að að dreifa þessu rusli, látum fyrirtækin hafa fyrir því sjálf.

Kolbeinsstaðafjall. Canon 350D, EF 50 f/1.8 II
