Háskólar

Loksins er útlendingur búinn að segja þau fullkomlega augljósu sannindin að það sé fáránlegt að reka 7 háskóla á Íslandi. Þá verður kannski farið að taka mark á því. Í raun ætti ríkið bara að setja pening í einn háskóla, Háskólann, þannig að ef aðrir vilja reka eða stunda nám í öðrum háskóla verði þeir bara að borga fyrir það.

Það vær rætt um háskólanám á morgunvaktinni í útvarpinu í morgun. Þar var sagt frá því að árið 2001 hefðu verið 7000 nemndur á háskólastigi en núna væru þeir 13000, svo var fullyrt að þetta sýndi hvað „gróskan“ væri mikil. Það er mikill misskilningur, fleiri nemendur þýða ekki endilega meira gróska.

surtseyjarfara-web.jpg

Beðið eftir þyrlu. Canon 350D, EF 24 f/2.8

May 27, 2009 • Posted in: Menntun • No Comments

Búinn!

Nú hef ég skilað MSc. ritgerðini. Það er skrítið, ég þjáist af samviskubiti yfir því að vera ekki að læra en það er ekkert sem ég á að vera að gera. Ef einhvern vantar jarðfræðing, sagnfræðing, vélvirkja eða allt af þessu í vinnu þá má viðkomandi láta mig vita.

Fyrirlestur 5. júní, klukkan 12:15 í sal jarðvísindastofnunar í Öskju.

ljosarfjoll2-web.jpg

Ljósárfjöll. Canon 350D, EF 70-210 f/3.5-4.5

May 26, 2009 • Posted in: MSc. • 4 Comments

Duglegir menn

Ég var að lesa mjög góða grein í Dagblaðinu Nei. Ég held að duglegir menn hafi sett okkur á hausinn.

Annars ferst mér að vera að tala um dugnað, búinn að sitja á hverjum degi fram á kvöld í þrjár vikur við að klára ritgerðina mína. Skila af mér næsta föstudag. Að því loknu ætla ég að gera mitt besta í að vera latur, amk út júní.

a-reykjadalir6-web.jpg

Setlög í Eystri-Reykjadal, Fjallabaki. Canon 350D, EF 70-210 f/3.5-4.5

May 18, 2009 • Posted in: Kreppa, MSc. • No Comments

Megrun

Samkvæmt þessu var megrunarlausi dagurinn í gær. Megrunarlausi dagurinn er sniðugt fyrirbæri, hann er einslags uppskeruhátíð ofsafeitra þar sem góðum árangri á heimslista BMI er fagnað. En betur má ef duga skal, við erum ekki einu sinni komin í 16 sæti heldur sitjum í því 17.

Það gæti verið sniðug hugmynd að fjölga slíkum dögum. Hvernig væri að hafa „afborgunarlausa daginn“ þar sem skuldugir gætu fagnað ótrúlegum árangri í skuldasöfnun miðað við höfðatölu. Einnig gæti „kolefnisbindingarlausi dagurinn“ verði sniðugur, þá gætu bíleigendur komið saman á Grundartanga og fagnað góðum árangri í kolefnisútblæstri, miðað við höfðatölu.

varda-web.jpg

Séð yfir Isfjorden, Svalbarða. Canon 350D, EFs 18-55 f/3.5-5.6 II

May 7, 2009 • Posted in: Almennt nöldur • No Comments

Vorverkin

Í bloggi sem ég birti þremur og hálfum mánuði sagðist ég ætla að setja íbúðina mína á sölu. Núna síðastliðinn mánudag skrifaði ég undir sölusamning. Ekki var það samt svo gott að íbúðin seldist ein og sér heldur settum við Charlotta hana upp í 80 ára gamalt einbýlishús á Norðurbraut í Hafnarfirði. Afhending á báðum eignum verðu 1. júní, 11 dögum eftir að ég verð að skila MSc ritgerðinni. Nóg að gera.

stofa-web.jpg

Stofan á Hellu. Canon 350D, EF 24 f/2.8

May 7, 2009 • Posted in: Fasteignir, MSc. • 4 Comments

1. Maí

Voðalega er það öfugsnúið að tengja verkalýðsfélög við 1. maí. Auðmanna meðvirknin og evrópusambands ástin er svo mikil í þessum klúbbum að venjulegt fólk hefur ekkert þangað að gera.

stockholm-web.jpg

Rannsóknarskipið Stockholm fyrir utan Poolpinten, Svalbarða. Canon 350D, EFs 18-55 3.5-5.6 II

April 30, 2009 • Posted in: Almennt nöldur • 3 Comments