Archive for the ‘Íþróttir’ Category
Tvö gull, eitt brons
Mexíkó nældi sér í tvenn gullverðlaun og eitt brons á Ólympíuleikunum. Bæði gullin komu fyrir afbragðs sparktakta í taekwondo en Mexíkó mun vera eitt fremsta landið í þeirri bardagalist. Bronsið fékkst svo fyrir dýfingar af 10 m palli.
Ég gleðst að sjálfsögðu yfir silfurverðlaunum Íslendinga í handbolta eins og aðrir. Megi þau verða fleiri í framtíðinni í öllum greinum auk hinna málmanna líka.
Skákin rægð
Þeir sem tala illa um skák opinberlega, eins og Doktorinn og Silfur-Egill, gera það af sömu ástæðu og ég tala iðulega illa um fótbolta. Geta ekkert í’essu.
Bréfskák
Á heimasíðu Félags íslenskra bréfskákmanna er að finna svohljóðandi skilgreiningu á bréfskák:
Bréfskák er það form skákar sem tefld er með þeim hætti að leikirnir eru sendir með pósti (póstkorti, bréfi, vefpósti eða vefþjóni). #
Á Facebook er hægt að tefla þannig að líklega flokkast það sem bréfskák. Ég hef þegar skorað á Gneistann í eina skák, hún hófst í gær og leiknir hafa verið þrír leikir. Með þessu áframhaldi endist skákin okkur fram í apríl en hvað liggur svosem á.
Skákmenn eru venjulega taldir hinir rólegustu menn (Fisher var undanteking), hvað er þá hægt að segja um þá sem tefla bréfskák? Ég man eftir því að hafa séð í sjónvarpinu einhvern tímann fyrir löngu mynd um þannig skákmann sem fékk sent í póstinum bréf með næsta leik andstæðingsins. Þá skundaði hann að skákborðinu, lék og velti svo fyrir sér stöðunni. Mér fannst þetta vera mjög siðfágað sport þá og finnst reyndar enn.
Hvað um það, ég vil biðja Óla um að leika. Ég hef eytt síðustu þremur klukkustundum fyrir framan tölvuskjáinn í veikri von um að eitthvað fari nú að gerast. Er ekki að höndla þessa spennu…..
Töff skíðaíþróttir
Einn Þjóðverjinn hélt því fram í gær yfir Ólympíuleikaglápinu að curling væri komið frá Norðurlöndunum. Ég trúði honum ekki enda ómögulegt að Norðurlandabúar gætu fundið upp svona kjánalega íþrótt. Wikipedia heldur því fram að curling sé komið frá Skotlandi, ég ætla að halda mig við þá söguskýringu. Allar töff íþróttirnar, eins og skíðaskotfimi og skíðastökk eru hins vegar norrænar.
Gaurinn frá Indónesíu er alveg gáttaður yfir því hvað það er til mikið af vetraríþróttum. Merkilegt hvernig hægt er að nota frosið vatn í margt skemmtilegt.
Leikurinn
Getur ekki einhver vel tengdur maður reddað mér tveimur miðum á Svíþjóð-Ísland leikinn? Það væri mjög vel þegið.
Boltinn á Sólon
Ég fór og horfði á úrslitaleik EM á Sólon, var boðið þangað af Renato hinum portúgalska. Að sjálfsögðu tókst mér að mæta 10 mín of seint og fékk ekkert sæti því efri hæðin var pökkuð af fólki, aðallega Portúgölum.
Fótboltinn
Ég hef lært margt nytsamlegt á því að fylgjast með EM í fótbolta undanfarna daga. T.d. er nóg að skora eitt mark til þess að vinna leik. Mikilvægt er að skora úr föstum leikatriðum. Gott er að byrja byrjunina vel. Vítaspyrnur eru góð marktækifæri og aukaspyrnur nálægt markinu eru hættulegar. Þegar staðan er 0-0 hefur hvorugt liðið skorað. Menn sem eru 31 árs eru á grafarbakkanum. Oft vilja liðin skora mark til þess að vinna leikina. Svo eru leikir ekki búnir fyrr en þeir eru búnir.
Íþróttafréttamenn láta mörg gullkorn fljúga, verst að maður gleymir vitleysunni sem vellur upp úr þeim jafnóðum.
1-1
Þarna tapaði ég rauðvínsflösku…..
Veðmál
Ef leikurinn á eftir, Holland-Þýskaland fer 3-2, þá fæ ég átta rauðvínsflöskur. Nú verður horft á leikinn með mikilli athygli :þ
Formúlublogg
Nú er formúlunni lokið í ár með sigri Michael Schumachers. Þar með lauk einnig Formúluleiknum ógurlega og endaði ég í fimmta sæti af tíu í minni deild. Í heildarkeppninni endaði ég í 714 sæti af 2325 sem verður að teljast afleitt. Vil ég hér með skora á Knút að halda aðra svona keppni á næsta keppnistímabili svo að ég geti nú bætt mig eitthvað. Ef af verður þá vil ég einnig hafa einhver verðlaun fyrir fyrsta sætið, t.d. væri bjórkassi klassísk verðlaun.
Annars var formúlan í ár mun meira spennandi en mörg undanfarin ár. Spurning um hvað gerist á næsta tímabili. Ég held persónulega að tími Montoya og Williams liðsins sé kominn. Hvar getur maður veðjað á svona dót á Netinu?