Ari þriggja ára
Þrátt fyrir að það séu næstum tvær vikur liðnar þá vil ég ekki sleppa því að minnast á afmæli Ara þan
n 11. janúar síðastliðinn. Drengurinn er orðinn þriggja ára og er nokkuð stoltur af þvi. Smelli inn einni mynd af kappanum svona til hátíðabrigða.
Fór vel á því að á afmælisdeginum skundaði ég niður á pósthús til að sækja jólapakkann frá Íslandi fullan af góðum gjöfum.
Annars gengur eitthvað hægt að blogga undanfarið. Ætla þó mér ekki að enda sem Facebook-vesalingur eins og hafa orðið örlög svo margra fyrrverandi bloggara.

Tags: Ari Snær