Archive for the ‘Uncategorized’ Category

Nýtt samfélag?

Sunday, October 26th, 2008

Stór hluti Íslendinga eru íhaldssamir sérhagsmunaseggir sem svitna þýlyndisótta. Veit ekki hvort maður getur leyft sér að vona að það breytist eitthvað, jafnvel þótt mikið gangi á.

Lexíur í auðmýkt

Thursday, October 23rd, 2008

Ég fagna þeim, miklum sem litlum.

Tími kominn á Marx

Thursday, October 16th, 2008

Það er mikið fjasað og þrasað í þessu samfélagi núna, eðlilega, en mér finnst uppörvandi hversu margir koma með góð innlegg í umræðuna. Miklu fleiri en maður hefði þorað að vona, í rauninni. Einar Már Guðmundsson rithöfundur á t.d. ágæta grein í mogganum í dag. Skýtur m.a. svolítið á Samfylkinguna. Ég skora bara á samfylkingarfólk sem les hana að fara ekki einfaldlega í fýlu, heldur meðtaka gagnrýnina, velta henni fyrir sér, og taka svo málefnalega afstöðu til hennar.

Það er kominn tími á Marx aftur.

Hvað er annars málið með þennan Vilhjálm Egilsson? Nennir einhver að skvetta vígðu vatni á hann?

Talandi skáld

Wednesday, October 15th, 2008

Stundum er talað um að þessi eða hinn sé talandi skáld, og látið með það eins og það sé merkilegt.

Svo heyrir maður Guðna Ágústsson segja:

“Ríkisstjórnin kemur hér að hausti
rúin trausti”

Iss, maður kemst af án þess.

Almennilegt líf

Friday, October 10th, 2008

“Höfum hugfast að eitt það versta sem getur hent eina þjóð er stéttaskipting. Hún er átumein sem grefur um sig og sýkir allan þjóðarlíkamann. Ekki aðeins að hún holi að innan ræðu forsætisráðherra á 17. júní og forsetans á nýársdag, hún dæmir heilu þjóðfélagshópana til niðurlægjandi fátæktar og smánar. Lóðbeint þangað stefndi það ástand sem við erum nú að kveðja.

Viðmiðun markaðarins er hrunin. Við tekur það sem var þarna allan tímann: almenningur.

Almennilegt líf.”

- Pétur Gunnarsson, uppáhalds esseyistinn minn, í Mogganum í dag.

Friedmanistar ekki í nógu miklu stuði

Thursday, October 9th, 2008

Já, hvað segiði, eru IMF-gaurarnir komnir til landsins?

Var löggan búin að fá þessar rafbyssur? Þær gætu þá komið að gagni núna.

Ung vinstri græn krefjast saðningar

Sunday, October 5th, 2008

Eyddi helginni á landsfundi UVG og var sú samkoma ferskari en andskotinn, mögulega að undanskilinni þessari peddzu með frönskum og bernaisesósu. Fæst slíkt nokkurs staðar nema á Akureyri?

Álíka fersk og téð peddza er svo þessi málefnalega og heiðskíra gagnrýni enn einnar blogghetjunnar. Það er sniðugt hjá honum að láta fylgja með mynd af börnunum sínum á góðri stundu, en af henni að dæma virðist þó kannski vera full mikil léttúð við völd hjá þeim. Við skulum senda þeim góða strauma og vona að þau muni fá aðhaldið sem þau þrá svo greinilega og verðskulda án vafa. Væntanlegar ályktanir munu verða jafnvel enn meira spennandi og fjalla m.a. um hvernig kveða á niður bitra, miðaldra dólgabloggara með nefháraklippum, rassa með pólitískum viðrinum, og skítamóral með góða skapinu.

Svo fyrir ofan sem fyrir neðan

Friday, October 3rd, 2008

Áhugaverður samanburður hér á ferð. Ástandið hvað?

Ummæli dagsins

Wednesday, October 1st, 2008

“Mótmælendur hafa ekki verið hátt skrifaðir hjá mér í gegnum tíðina. Helst vegna þess að oftar en ekki er lítill hópur einstaklinga að mótmæla vilja meirihlutans.”

- Ómar R. Valdimarsson

“Hér hefur fólk dáið. Það er nöturlegt.”

Tuesday, September 23rd, 2008

Það vildi ég að Stebbifr hætti að blogga um mannlega harmleiki. Það er eitthvað einstaklega ósmekklegt við það hvernig hann endursegir hræðilega atburði eins og hann sé átómati, í bland við einstaklega flatneskjulegar og fyrirsjáanlegar vangaveltur um samfélagið og heimsmálin svo úr verður eitthvað sem er næstum eins og óviljandi paródía af upprunalegu fréttinni af moggavefnum.