Af steypu er komin út!

afsteypukover Nú skelfur jörð og skakast himnakroppar!

Bókstafir skríða í felur fyrir komandi fyrirsát, ljóðlistin tekur jóðsótt og fæðir nýja bók: Af steypu, fimmta vers í afbókaflokki Nýhils!

Af steypu meðhöndlar sjálfa meðhöndlun tungumálsins, setur efnið í fyrirrúm og spyr sig: Hvað á þetta allt saman eiginlega að þýða? Hvað er hægt að gera með ljóðlistinni? Myndljóð, konkretljóð, endurvinnsla, hömlur,
konseptljóðlist - möguleikarnir virðast óþrjótandi. Bókin er svo stútfull af
ljóðverkum og ritgerðum, bæði frumsömdum og þýddum, að bókahillur hreinlega svigna og fílefldir burðarþrælar Nýhils eru við það að kikna í hnjáliðum. Fullvíst má telja að svo veglegt rit um ljóðlist hafi ekki komið út á
Íslandi í langan tíma.

Ritstjórar Af steypu eru Eiríkur Örn Norðdahl og Kári Páll Óskarsson, en meðal höfunda efnis eru Gertrude Stein, Guillaume Apollinaire, Charles Bernstein, Inger Christensen, Gyrðir Elíasson, Óskar Árni Óskarsson, Sjón og margir, margir fleiri. Leiðbeinandi verð bókarinnar er kr. 3990 og er hún til sölu í öllum betri bókaverslunum. Hún er í kiljuformi og 284 síður að lengd.

Svör við öllum spurningum veita ritstjórar:

Eiríkur: kolbrunarskald@gmail.com
Kári: kari@kommunan.is

Ps. Innilegar þakkir til allra þeirra sem lögðu hönd á jarðvinnslutækið sem byltir við efsta yfirborði jarðar.

Comments are closed.