Epíska hefðin í íslenskum bókmenntum

Er að hlusta á sagnabálk Ólafs Jóhanns Sigurðssonar um Pál Jónsson blaðamann í hlaðvarpi.

Í 956. kafla eignast Páll reiðhjól. Í 957. kafla missir hann sveindóminn. Eða var það öfugt?

Uppfært: í 1031. kafla sér Páll brauðrist í fyrsta sinn.

3 Responses to “Epíska hefðin í íslenskum bókmenntum”

  1. Ármann says:

    Þetta eru allt mikilvægir þættir í lífi ungra manna.

  2. 101 says:

    Bara allt að gerast.

  3. Ásgeir H says:

    Þetta hefði fyrst orðið spennandi ef hann hefði misst sveindóminn með brauðristinni …