Archive for February, 2009

Frjálshyggjan og hennar sígildu baráttumál

Sunday, February 22nd, 2009

Jæja krakkar hvað segiði, bankarnir bara komnir aftur í þjóðareigu og allt í volli. Hugmyndafræðin bara fallin, þetta eru nú meiri lætin. Hey, hvað með að koma núna með eins og eina eða tvær klassískar ályktanir um lögleiðingu allra eiturlyfja eða rétt kvenna til að selja líkama sinn? Væri það ekki upplagt? Þarf ekki að ræða það aðeins betur? Eitthvað svona krúttlega heimskulegt til að laða fram brosið hjá okkur hinum á þessum hráslagalegu útmánuðum…

En ég áfellist ykkur reyndar ekki. Þó að fólk hafi heimskulegar skoðanir er ekki þar með sagt að það sjálft sé heimskt, eða ófært um heilbrigt endurmat.

Epíska hefðin í íslenskum bókmenntum

Thursday, February 12th, 2009

Er að hlusta á sagnabálk Ólafs Jóhanns Sigurðssonar um Pál Jónsson blaðamann í hlaðvarpi.

Í 956. kafla eignast Páll reiðhjól. Í 957. kafla missir hann sveindóminn. Eða var það öfugt?

Uppfært: í 1031. kafla sér Páll brauðrist í fyrsta sinn.

Ein athugasemd

Monday, February 9th, 2009

Sem betur fer eru skynsamir menn þarna úti sem nenna að rökræða opinberlega og ítarlega um listamannalaun. Það eru bara ein rök sem mér finnst ekki heyrast nógu oft: það ætti að vera eðlilegt og sjálfsagt að samfélag geri borgurum sínum kleift að þroskast og njóta sín með því að stunda þá iðju sem hugur þeirra og hæfileikar standa til.

Því miður virðast margir vilja meina samborgurum sínum einmitt þetta, krefjast af þeim ófullnægju og vansældar, og að þeir selji sig, selji hug sinn. Sú krafa er yfirleitt studd úreldum hugmyndum um hvað það sé að vera matvinnungur. Sorgleg þröngsýni. Villimennska.

Beckett í útvarpinu

Monday, February 2nd, 2009

Samuel Beckett var á dagskrá rásar 1 í gær, í útvarpsleikhúsinu. Ég var víst fenginn í þetta til að kommenta á gamla skrögginn, reyndi að segja eitthvað af viti. Í öllu falli gaman að hafa getað lagt eitthvað af mörkum til þessa vandaða prógramms.

Annars fékk ég síðasta hefti af ljóðatímaritinu Fulcrum í pósti í síðustu viku, 700 blaðsíðna hlunk af ljóðum og greinum, þetta hefti tileinkað ljóðlist Becketts. Pantaði það… í september! Ljóðið ratar greinilega til sinna þótt síðar verði. Yður sem pantað hafið menningarefni frá fjarlægum slóðum segi ég: örvæntið eigi þó að biðin sé löng og erfið.