Helgi Hálfdanarson

ÓSÍMANDJAS HINN MIKLI
(Percy Bysshe Shelley)

Ég heyrði sagt frá ferð í fornu landi:
Tveir fætur gildir meitlaðir í stein
búklausir stóðu orpnir auðnar-sandi,
en ásýnd tvístruð lá sem moluð hlein

í sandsins hafi. Undir ennisbandi
sást ygglibrún, en kuldaglott á vör.
Listamanns-augað lofa valdsmanns-brár
sem lýsa þótta undir konungs-skör.

Og neðst við stall má nema leturdrátt:
„Nafn mitt er Ósimandjas, kóngur hár.
Sjá hér mitt ofurvald – og lútið lágt!“

Auk þessa – ekkert! Áfram veðrin rjúfa
hið aldna tignar-flak. Í hverri átt
auðnanna sandar endalausir grúfa.

Þýðandi: Helgi Hálfdanarson

Comments are closed.