Archive for January, 2009

Helgi Hálfdanarson

Friday, January 30th, 2009

ÓSÍMANDJAS HINN MIKLI
(Percy Bysshe Shelley)

Ég heyrði sagt frá ferð í fornu landi:
Tveir fætur gildir meitlaðir í stein
búklausir stóðu orpnir auðnar-sandi,
en ásýnd tvístruð lá sem moluð hlein

í sandsins hafi. Undir ennisbandi
sást ygglibrún, en kuldaglott á vör.
Listamanns-augað lofa valdsmanns-brár
sem lýsa þótta undir konungs-skör.

Og neðst við stall má nema leturdrátt:
„Nafn mitt er Ósimandjas, kóngur hár.
Sjá hér mitt ofurvald – og lútið lágt!“

Auk þessa – ekkert! Áfram veðrin rjúfa
hið aldna tignar-flak. Í hverri átt
auðnanna sandar endalausir grúfa.

Þýðandi: Helgi Hálfdanarson

Hver er ekki bófi?

Monday, January 19th, 2009

Á leiðinni heim úr kjörbúðinni áðan rakst ég á mann. Hann benti á bónuspokann minn og sagði “þú verslar við bófana”, sem var almenn athugasemd frekar en ásökun í minn garð. “Já, en hver er ekki bófi?”, datt þá út úr mér. Ég átti vitanlega ekki við að fólk almennt væri bófar, þetta var bara ein af þessum setningum sem koma stundum út um munninn á manni án þess að bak við þær séu vel mótaðar hugsanir.

Ég held, að það sem mig langaði að segja væri að ég vantreysti athafnamönnum almennt. Ég hef alltaf haft illan bifur á þeim mörgum, en miklu meira nú orðið en áður. Alveg síðan hrunið varð hef ég, og væntanlega flestir aðrir, upplifað íslenskt samfélag mjög ákveðið sem samfélag sem er undir hælnum á viðskipta-þorpurum, maðksmogið og illa lyktandi. Það er vægast sagt leiðinlegt, en virðist ekki ætla að breytast neitt. Engum hefur verið refsað, enginn hefur sagt af sér.

Það er líka ansi ömurlegt að vera fastur í jafn symbíótísku sambandi við aðila sem maður hefur jafn illt álit á. Ég þarf að versla ódýrt, og það er engin önnur kjörbúð nálægt mér. Ég fæ næringu mína frá bófunum.

Stóru og litlu fiskarnir eftir Bruegel

Tuesday, January 6th, 2009

Held að ég hafi birt þessa mynd nokkrum sinnum áður, frá því að ég fór fyrst að gapa á netinu fyrir nokkrum árum. Hún er bara svo frábær og á svo einstaklega vel við núna.

Bigfishlittlefish.JPG

Sjá betur hér.