Við eignuðumst a.m.k. tvær algjörar lykilbækur: Árstíð í helvíti eftir Rimbaud í þýðingu Sölva Björns og úrval af helstu ljóðum Allens Ginsberg í þýðingu Eiríks Arnar. Við það bætist að í ljóðabókinni hans Magnúsar Sigurðssonar er talsvert magn af klassískum ljóðmælum eftir Katúllus og Virgil í þýðingu og Don Gyrðir Elíasson sendi frá sér Flautuleik álengdar. Ef þessari glæsilegu pródúksjón verða ekki gerð svolítið ítarleg skil í viðeigandi miðlum þá er eitthvað að.