Mér varð litið í nýjasta hefti Skírnis í dag og krossbrá þegar ég sá þar mitt eigið nafn á prenti, í grein eftir Ástráð og Eystein. Tilefnið er lítil grein sem ég skrifaði í bræðiskasti fyrir tveimur árum í Moggann, til höfuðs einhverjum gaur sem var almennt hlynntur virkjunum og vildi endilega blanda Eyðilandinu inn í það mál og nota það sem lóð á vogarskálar síns sjónarmiðs. Það angrar mig mikið núna, þetta greinarkorn. Er reyndar enn á sömu skoðun og þá, en ég hefði skrifað hana allt öðru vísi í dag, af meiri yfirvegun (uu við hvern er ég að tala hérna?).
Svo var nýjasta heftið af Jóni á Bægisá, því frábæra tímariti, að detta í hús, með tveimur litlum ljóðum eftir Paul Muldoon sem ég þýddi fyrir heilli eilífð, að mér virðist. Hefði líklega viljað gera það á annan hátt, þori varla að gá.