Nú munu vinir mínir þeir Alamos, Norton og Peter Lehman mun sjaldnar en áður geta komið í heimsókn.
Archive for October, 2008
Ó það er kreppa
Wednesday, October 29th, 2008Þýddar skáldsögur
Wednesday, October 29th, 2008Ekki ein, ekki tvær heldur heilar fjórar kvikmyndir eftir bókum Cormacs McCarthy eru á leið í bíó. Einhver hygginn útgefandi ætti nú að láta þýða þennan höfund fyrir sig. Hvað með The Road? Myndi ekki smá heimsendastemning steinliggja núna?
Hef verið að rifja upp nokkrar perlur úr íslenskri þýðingasögu. Venjulega þegar maður talar um góða þýðingu á hann ýmist við að íslenski textinn sé góður, eða að frumverkinu sé fylgt af mikilli trúmennsku, og stundum hvort tveggja. Nú er ég ekki sérlega góður í hvorki norsku né dönsku, en Pan eftir Hamsun í þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi, og Vonin blíð eftir Heinesen í meðförum Elíasar Mar(ar?) virðast mér vera algjörar úrvals þýðingar. Fleiri tillögur?
Láttu geisa ljóð úr bási
Tuesday, October 28th, 2008Væntanleg er þýðing á Árstíð í helvíti eftir Rimbaud, sem og þýðingar á ljóðum Allens Ginsberg, og þýðingar á úrvali belgískra ljóða. Sem er auðvitað frábært. Á hverjum degi fæ ég sendar haganlega gerðar gamanvísur, yfirleitt um kreppuna, og rapparar troða rímum inn í eyrun á mér. Bráðum kemur út lítil bók eftir sjálfan mig. Í henni er sumt sem er alvarlegt og annað sem myndi kannski frekar flokkast sem “flipp” eða “eip” eða “fíflalæti”, svolítið eins og þetta hér sem Þórbergur orti:
Láttu geisa ljóð úr bási,
ljúfa barn í mannlífsskarni!
Spæjari! Varstu sprok að segja?
Sprungu lýs á rauðri tungu?
Glyserin er guðleg læna.
Gling-gling-gló og hver á hróið?
og þetta má og ekkert að því, eins og annars staðar stendur. Góðar stundir.
Nýtt samfélag?
Sunday, October 26th, 2008Stór hluti Íslendinga eru íhaldssamir sérhagsmunaseggir sem svitna þýlyndisótta. Veit ekki hvort maður getur leyft sér að vona að það breytist eitthvað, jafnvel þótt mikið gangi á.
Lexíur í auðmýkt
Thursday, October 23rd, 2008Ég fagna þeim, miklum sem litlum.
Tími kominn á Marx
Thursday, October 16th, 2008Það er mikið fjasað og þrasað í þessu samfélagi núna, eðlilega, en mér finnst uppörvandi hversu margir koma með góð innlegg í umræðuna. Miklu fleiri en maður hefði þorað að vona, í rauninni. Einar Már Guðmundsson rithöfundur á t.d. ágæta grein í mogganum í dag. Skýtur m.a. svolítið á Samfylkinguna. Ég skora bara á samfylkingarfólk sem les hana að fara ekki einfaldlega í fýlu, heldur meðtaka gagnrýnina, velta henni fyrir sér, og taka svo málefnalega afstöðu til hennar.
Það er kominn tími á Marx aftur.
Hvað er annars málið með þennan Vilhjálm Egilsson? Nennir einhver að skvetta vígðu vatni á hann?
Talandi skáld
Wednesday, October 15th, 2008Stundum er talað um að þessi eða hinn sé talandi skáld, og látið með það eins og það sé merkilegt.
Svo heyrir maður Guðna Ágústsson segja:
“Ríkisstjórnin kemur hér að hausti
rúin trausti”
Iss, maður kemst af án þess.
Almennilegt líf
Friday, October 10th, 2008“Höfum hugfast að eitt það versta sem getur hent eina þjóð er stéttaskipting. Hún er átumein sem grefur um sig og sýkir allan þjóðarlíkamann. Ekki aðeins að hún holi að innan ræðu forsætisráðherra á 17. júní og forsetans á nýársdag, hún dæmir heilu þjóðfélagshópana til niðurlægjandi fátæktar og smánar. Lóðbeint þangað stefndi það ástand sem við erum nú að kveðja.
Viðmiðun markaðarins er hrunin. Við tekur það sem var þarna allan tímann: almenningur.
Almennilegt líf.”
- Pétur Gunnarsson, uppáhalds esseyistinn minn, í Mogganum í dag.
Friedmanistar ekki í nógu miklu stuði
Thursday, October 9th, 2008Já, hvað segiði, eru IMF-gaurarnir komnir til landsins?
Var löggan búin að fá þessar rafbyssur? Þær gætu þá komið að gagni núna.
Ung vinstri græn krefjast saðningar
Sunday, October 5th, 2008Eyddi helginni á landsfundi UVG og var sú samkoma ferskari en andskotinn, mögulega að undanskilinni þessari peddzu með frönskum og bernaisesósu. Fæst slíkt nokkurs staðar nema á Akureyri?
Álíka fersk og téð peddza er svo þessi málefnalega og heiðskíra gagnrýni enn einnar blogghetjunnar. Það er sniðugt hjá honum að láta fylgja með mynd af börnunum sínum á góðri stundu, en af henni að dæma virðist þó kannski vera full mikil léttúð við völd hjá þeim. Við skulum senda þeim góða strauma og vona að þau muni fá aðhaldið sem þau þrá svo greinilega og verðskulda án vafa. Væntanlegar ályktanir munu verða jafnvel enn meira spennandi og fjalla m.a. um hvernig kveða á niður bitra, miðaldra dólgabloggara með nefháraklippum, rassa með pólitískum viðrinum, og skítamóral með góða skapinu.