Umhverfisráðherra sendi fyrirhugaðar framkvæmdir á Bakka í mat, og það hefur vakið upp þónokkur viðbrögð. Mikill hluti þessarra viðbragða er væl. Norðlenskir þingmenn, verkalýðsforingjar og bloggarar eru hreinlega miður sín og tala meira að sega um atlögu að íbúum svæðisins og rýtingsstungur í bakið. Fyrir mér hljóma þeir eins og aumingjar. Þarf virkilega að sökkva í svona aumkunarverða örvæntingu af því að töfralausnin mikla kemur ekki alveg strax? Maður spyr sig hvort þetta fólk hafi virkilega enga trú á sjálfu sér fyrst það er svona rosalega háð hugmyndinni um álver. Þvílík andleg fátækt.
Þegar Ásbjörn Björgvinsson byrjaði með hvalaskoðunarferðir á húsavík héldu allir að hann væri ruglaður. En gekk þetta svo ekki bara ágætlega hjá honum?
UPPFÆRT 07.08.06: Jæja, það var víst ekki Ásbjörn sem byrjaði með hvalaskoðunarferðirnar heldur safnið, skömmu eftir að ferðirnar byrjuðu. Breytir því ekki að hann er frumkvöðull.