“Kínversk yfirvöld hafa svikið gefin loforð um umbætur í mannréttindum í aðdraganda Ólympíuleikanna. Amnesty International birtir í dag nýja skýrslu um mannréttindaástandið í Kína.
Kínversk yfirvöld halda uppteknum hætti og ofsækja og refsa öllum þeim sem fara fram á virðingu fyrir mannréttindum. Yfirvöld hafa misst sjónar á þeim loforðum sem þau gáfu fyrir sjö árum þegar alþjóðlega Ólympíunefndin ákvað að sumarleikarnir 2008 færu fram í Peking.
Viðvarandi mannréttindabrot kínverskra yfirvalda vanvirða Ólympíuhugsjónina og ógna orðspori leikanna. Amnesty International krefst þess að allir samviskufangar verði leystir úr haldi nú þegar, blaðamönnum bæði innlendum og erlendum verði heimilað að starfa óáreittir og yfirvöld verða að vinna af heilum hug að afnámi dauðarefsinga.
Í skýrslu Amnesty International “Olympics Countdown: Broken Promises” er lagt mat á efndir kínverskra yfirvalda á fjórum sviðum sem tengjast grunngildum Ólympíuhugsjónarinnar. Skoðaðar eru ofsóknir á hendur mannréttindafrömuðum, fangelsanir án dóms og laga, ritskoðun og dauðarefsingar.
Í skýrslunni kemur fram að ástand mannréttinda hefur haldið áfram að versna í landinu.
Meðal þeirra tilmæla sem fram koma í skýrslunni eru tilmæli til þjóðhöfðingja og annars áhrifafólks sem sækir leikana um að krefjast opinberlega virðingar fyrir mannréttindum í Kína og krefjast frelsunar
mannréttindafrömuða sem sæta ofsóknum eða sitja í fangelsum landsins. Leiðtogar heimsins sem sækja leikana eiga ekki að þegja um ástandið og samþykkja að Ólympíuleikar fari fram í skugga kúgunar og ofsókna.
Hægt verður að nálgast skýrsluna í heild sinni á slóðinni
http://www.amnesty.org/en/library/info/ASA17/089/2008/en
Sjá einnig:
www.thechinadebate.org”