Archive for June, 2008

Hér bindum við okkar bagga og ekkert rugl

Thursday, June 26th, 2008

“Heybaggi er því ekki til án bands, og er þó band og baggi sitt hvað. Eins er ljóð ekki til í íslenskum kveðskap án ríms og er þó ljóð og rím sitt hvað.”

- Jón Sigtryggsson, Lesbók Morgunblaðsins 18. tbl. 1942.

Sjokkið

Tuesday, June 3rd, 2008

“They never won the battle of ideas; that’s the great myth, that’s the great fairy tale. All they did was kick us when we were down. They didn’t win the intellectual debate.”

- Naomi Klein

Ég ætla klárlega að lesa bókina The Shock Doctrine eftir Naomi Klein í sumar. Búinn að hita upp með bæði þessu og þessu, og get ekki annað sagt en að ég sé orðinn ansi spenntur.

Napóleons-heilkennið

Tuesday, June 3rd, 2008

Átti stuttlega saman að sælda við eitt stykki sporvagna-eftirlitsmann í gærkvöldi. Skondinn fýr þar á ferð. Hann var greinilega ekki lítið að fíla sig sem sporvagna-eftirlitsmaður og að “bösta” miðalaust fólk. Hann sagði m.a.s. “On attaque!” (“árás!”) þegar næsti sporvagn á eftir mínum renndi inn á stoppistöðina og þusti svo um borð með teymið sitt (greinilega “foringinn” í hópnum), eins og þarna færi svolítil stormsveit sem kallaði sko ekki allt ömmu sína. Þegar ég var búinn að sýna honum miðann minn sagði ég “Lengi lifi Vichy-stjórnin” til að stríða honum. Montpattinn snerist á hæli og kom hlaupandi á eftir mér: “Hvað sögðuð þér?” spurði hann. Hann hafði samt ekki tíma til að fylgja þessu mikilvæga spursmáli eftir því hann mátti ekki missa af sporvagninum. Rétt áður en vagndyrnar lokuðust sendi ég honum breiðasta skítaglottið mitt og sagðist hafa sagt að ég dýrkaði Frakkland. Svo renndi vagninn á brott.

Mannskepnan getur verið svo furðuleg. Hún elskar að hafa umboð. Hún elskar að hafa völd. Einu virðist gilda hvort það er afgreiðslufólk á videoleigum eða sporvagna-eftirlitsmenn, fljótlega eftir að þeir hafa fengið þessi embætti sín læra þeir að njóta umboðsins sem þeim fylgir.