Jamm. Best að blogga aðeins svo Kári hinn klúryrti sé ekki alltaf efstur á blaði hérna. Aurélie er að pæla í að koma til Íslands næsta haust og spurði mig hvernig Íslendingar taki á móti aðkomumönnum. Mér fannst ég auðvitað þurfa að segja eins og satt er að Íslendingar verða nú stundum pirraðir og dónalegir ef stelpan sem afgreiðir þá í kjörbúðinni er ekki búin að læra málið, og svo kom þangað lítill hópur af sígaunum sem voru snarlega reknir burt fyrir að.. fyrir hvað var þeim aftur sparkað úr landi? Fyrir að vera fátækir? Þeir spiluðu aðeins á harmonikur og betluðu kannski smávegis. Aurélie er með sítt dökkt hár og brún augu, og hún á næstum engan tískufatnað. Vona bara að löggan eigi ekki eftir að halda að hún sé sígauni. Hún fær vonandi að vera í friði.
Ég hef ennþá frekar lítið ferðast svo ég er að hugsa um að blogga bara um staðina sem ég ætla eða langar að ferðast til. Ég ætla til Metz sem er um 150 km héðan og hitta þar einn mann. Og til Toulouse, og hitta þar annan mann. Líka freistandi að fara suður til Aix-en-Provence. Langar að skjótast til Munchen að skoða Bruegel-málverk. Og svo er Barcelona líka á stefnuskránni. Svo á eftir að koma í ljós hvað maður hefur tíma fyrir mikið af þessu.
Úff, ferðalög. Ég held ég þurfi að lengja dvölina um ár ef ég ætla að ná að gera einhvern hluta af því sem mig langar til að gera.
Aix en Provence er krúttleg, hitt þekki ég ekki.