Archive for March, 2008

Og illgresið dafnar

Thursday, March 27th, 2008

Ég vil líka vekja athygli á þessu:

illfagnadurWEB.jpg

Mætið og sukkið! Og talið um pólitík ef þið viljið, það er ágætt líka.

Túristinn bloggar

Thursday, March 27th, 2008

Síðustu helgi eyddum við í París og það var verulega fínt einsog síðast. Og einsog síðast fengum við frábært gistipláss hjá Evu Maríu og meðleigjanda hennar í Montmartre, þar sem við höfðum það náðugt. Áa, Halldóra og Sveinbjörn komu í bjór eitt kvöldið svo það var smá Íslendingakvöld þarna á rue des trois freres.

Annars vorum við gríðar menningarleg og fórum á söfn. Hvernig er líka annað hægt en að fara á söfn þegar maður fer til Parísar? Það væri kannski svipað og að fara í Sixtínsku kapelluna og sleppa því að líta upp í loftið. Fara í kjörbúðina og kaupa pakkapizzu í staðinn fyrir að borða á ítölsku veitingahúsi. Í Centre Georges Pompidou var vangefið mikið af túristum, enda páskahelgi, og það sem verra var: sjálfvirku miðasalarnir voru bilaðir. Fokk! Biðröðin teygði sig útfyrir öll velsæmismörk. En þegar maður var loksins kominn inn var líka hægt að sjá margt fallegt, ásamt reyndar öðru sem mér fannst ógeðslega ljótt. Kandinsky stendur fyrir sínu.

Fór í annað sinn á Louvre og skoðaði smá anga af öllu því sem ég náði ekki að skoða síðast, aðallega þýsku og hollensku nöfnin í þetta sinn. Það er náttúrlega svo mikið af dóti á Louvre að það er fáránlegt, maður þyrfti að búa við hliðina á því til að geta skroppið þangað daglega, ef maður ætlaði að njóta þess virkilega. Þá gæti maður líka stungið sér inn á undan öllum helv. túristunum.

…ooog við fórum í Comédie Française-leikhúsið og sáum drullufína uppfærslu á Le Misanthrope eftir Moliére. Blessunarlega var það uppsetning sem hélt sig við texta skáldsins og var almennt smekkleg en nútímaleg um leið. Það var ekki eitthvað fáránlegt eip einsog þegar Ríkharður þriðji var settur upp í Þjóðleikhúsinu um árið. Eða eins og sýningin sem við fórum á í gærkvöldi, og sem við héldum að væri Lífið er draumur eftir Calderón. Því miður láðist að taka fram að þetta var í raun frjálsleg túlkun á verkinu og mjög lítið af texta Calderóns var flutt. Restin var bara eitthvað helvítis eip. Rúnk. Eip-rúnk. Hata svona eip-rúnk uppfærslur á klassískum verkum. Urr. Sem betur fer er alltaf hægt að stinga af útum bakdyrnar.

Annars vil ég bara lýsa því yfir að mér finnst lífið og tilveran æðislega frábær þessa dagana.

“A hair of the dog is a friend indeed”

Monday, March 17th, 2008

Nýjasta hefti Jóns frá Bægisá, tímarits þýðenda, fer bráðum að koma út og í því eru m.a. þýðingar eftir mig á tveimur litlum ljóðum eftir Paul Muldoon. Svona sem örlítil formleg kynning á honum og verkum hans á Íslandi. Einn helsti verkurinn var reyndar að finna tiltölulega meðfærileg ljóð eftir hann, því hann er svo mikill formtöframaður og þetta er allt svo þéttofið hjá honum. Hér eru tvö ljóð til viðbótar:

SYMPOSIUM

You can lead a horse to water but you can’t make it hold
its nose to the grindstone and hunt with the hounds.
Every dog has a stitch in time. Two heads? You’ve been sold
one good turn. One good turn deserves a bird in the hand.

A bird in the hand is better than no bread.
To have your cake is to pay Paul.
Make hay while you can still hit the nail on the head.
For want of a nail the sky might fall.

People in glass houses can’t see the wood
for the new broom. Rome wasn’t built between two stools.
Empty vessels wait for no man.

A hair of the dog is a friend indeed.
There’s no fool like the fool
who’s shot his bolt. There’s no smoke after the horse is gone.

OCTOBER 1950

Whatever it is, it all comes down to this:
My father’s cock
Between my mother’s thighs.
Might hehave forgotten to wind the clock?

Cookers and eaters, Fuck the Pope,
Wow and flutter, a one-legged howl,
My sly quadroon, the way home from the pub—
Anything wild and wonderful—

Whatever it is, it goes back to this night,
To a chance remark
In a room at the top of the stairs;
To an open field, as like as not,
Under the little stars.
Whatever it is, it leaves me in the dark.

Tvískiptingin í frönsku samfélagi

Thursday, March 13th, 2008

Þegar maður dvelst á meðal milljónaþjóða sér maður meiri þjóðfélagslega breidd en maður er vanur. Hérna í Neudorf, hverfinu mínu, eru mörg fjölbýlishús og í þeim held ég að búi margt fólk sem vinnur láglaunastörf, eða þiggur félagslegar bætur; fyrstu -, annarrar- eða þriðju kynslóðar innflytjendur frá gömlu nýlendunum; oft og tíðum fólk sem hefur ekki haft tækifæri til eða áhuga á að mennta sig. Þetta er fólk eins og feita konan með lafandi neðrivör sem gargar á vegfarendur á löngu færi hvort þeir eigi sígarettu eða smá klink, eða unglingsstrákarnir sem hanga á götuhornum hér daginn út og inn, og reyna að vera svalir í jogging-göllunum sínum. Það er gjarnan tillitslaust og dónalegt, borðar gjarnan óhollan mat eins og MacDonalds-hamborgara, blastar ömurlega heimskulegri hiphop- eða r&b tónlist á fullum styrk úr farsímunum sínum í sporvögnum eða strætisvögnum (allavega sumt yngra fólkið), og reykir ofan í börnin sín eins og það viti ekki að slíkt sé stórhættulegt, eða sé bara alveg sama. Ég ímynda mér að í frístundum láti það mata sig á heimskulegu afþreygingarefni frá Bandaríkjunum, hratinu úr Hollywood-skálinni, en það gæti svosem verið hroki í mér. Nú fyrirfinnst alveg nóg af fólki heima á Íslandi sem passar í þennan prófíl, en hér verð ég meira var við það, sjálfsagt afþví að samfélagið er miklu fjölmennara. En einnig út af þjóðskipulaginu.

Svo er auðvitað líka nóg af fólki hér sem er raunverulega illa statt, og betl er mikið.

Það er dapurlega tvöfalt, eða klofið, samfélag í þessu landi, samanber hinar reglulegu óeirðir sem blossa upp í fátækrahverfunum þegar einhver neisti, sem hlaut að kvikna fyrr eða síðar, tryllir þá útilokuðu hópa sem þar búa. Enn dapurlegra er að þetta þyrfti ekkert að vera þannig. Þetta er bara afleiðingin af neoliberalískum rétttrúnaði sem bæði hægrimenn og svokallaðir vinstrimenn hafa aðhyllst undanfarin ár.

Svo tókst Frökkum að kjósa yfir sig þennan Sarkozy-durt, og það er alveg örugglega ekki til bóta. Held það hafi ratað í íslenska fjölmiðla að hann gifti sig aftur nýverið. En ég efast um að t.d. nýlegar áætlanir um „endurbætur“ í frönskum fangelsismálum hafi borið á góma. Sarkozy vill koma fyrir sem svolítið hörkutól, einhver sem sýnir vandræðagemsum enga linkind, svo nú eru Frakkar komnir útí einhverjar fáránlegar lombrosoískar pælingar um hversu líklegir hinir og þessir séu til að brjóta lögin, og hyggjast byrja að stunda svokallaðar fyrirbyggjandi fangelsanir, eða la rétention de sûreté. Það er nokkuð ljóst að þetta klofna samfélag mun ekki samþættast betur með þessu áframhaldi.

Ekki þetta kerfi, takk fyrir. Vítin eru til að varast.

Hér er meira um fyrirbyggjandi fangelsanir (á frönsku).

..Þórbergur..Þórbergur..

Sunday, March 9th, 2008

Þórbergur Þórðarson er uppáhalds íslenski rithöfundurinn minn. Held að hann hafi verið það alveg síðan ég las Bréf til Láru, þrettán ára; ég hef ekki jafnað mig síðan. Þess vegna er ég auðvitað voða glaður yfir að karlinn sé að fá athygli núna og verið sé að endurútgefa hann. Það sem ég skil bara ekki er hve mikið hefur þurft að ganga á til að þessi endurútgáfa yrði að veruleika. Það þurfti að halda fjölmenna málstofu um Þórberg við íslenskuskor, fjalla um hann í bókum eftir Halldór Guðmunds og Pétur Gunnars, opna Þórbergssetrið fyrir austan, spila upptökurnar af Íslenskum aðli í Víðsjá ogégveitekkihvað.

Staðreyndin er bara sú að endurútgáfumál gamalla höfunda eru fáránlega léleg. Jón Yngvi Jóhannsson skrifar ágætis grein um þetta í síðasta TMM.

Nótt með Hamlet

Friday, March 7th, 2008

Vladmir Holan var tékkneskt skáld sem orti m.a. ljóðið Nótt með Hamlet. Ég veit ekkert um þetta ljóð, finnst titillinn bara svo æðislegur. Hugsa að ekki einu sinni ég hefði notað hann.

Tilvitnun dagsins

Thursday, March 6th, 2008

“Rúnk er þó allavega að fucka í mér.”

- Jón Örn Loðmfjörð

Tommaborgarar bestir

Tuesday, March 4th, 2008

Samkvæmt nýrri könnun sem birt var í Fbl. á dögunum þykir Íslendingum hamborgararnir á Hamborgarabúllu Tómasar, ásamt skammti af frönskum, kóki, og kaffisjeik í eftirrétt, besta máltíð sem völ er á, og skildi engan undra enda eru þeir fljótfengnir og renna ljúflega niður.

Næringarfræðingar bentu þó á að augljós tengsl séu á milli þessa mataræðis og síversnandi holdafars þjóðarinnar.

Eip dagsins á tregawöttunum

Monday, March 3rd, 2008

Það er þetta ljóð eftir Serge Pey sem hlýtur að vera eip dagsins. Ég ætla ekki að þykjast botna mikið í þessu, ég reyndi bara að hafa þennan texta álíka skrýtinn á íslensku og hann er á frönsku.

Evrópusambandið og Daniel Day-Lewis

Sunday, March 2nd, 2008

Ég er að reyna að þýða brot ad orðræðu Evrópusambandsins, þvílíkt stuð. En ég reyni að kvarta ekki því ég geri svo margt annað sem er skemmtilegt. Eins og t.d. að sjá myndina There Will Be Blood. Þvílík snilld.