John Pilger, alltaf hress.
Archive for January, 2008
Pilger í stuði
Monday, January 28th, 2008Skrílslæti?
Saturday, January 26th, 2008Einhverjir treggáfaðir/hægrisinnaðir leiðarahöfundar og moggabloggarar hafa verið að tala um meint skrílslæti í ráðhúsinu á fimmtudaginn.
Guðbergur Bergsson sagði einu sinni að í samanburði við suðrænar þjóðir væru Íslendingar (eða kannski sagði hann bara “norðurlandabúar”, man það ekki svo glöggt) væru frekar húsbóndahollir heldur en hitt. Er þetta rétt hjá honum? Þetta á allavega ekki við um fólkið sem mætti í ráðhúsið á fimmtudaginn og tjáði réttmæta reiði sína.
Þegar fólk hefur fulla ástæðu til að vera misboðið af hegðun stjórnmálamanna og segir hug sinn, eins og það gerði á fimmtudaginn, þá er það kallað skrílslæti af nokkrum kapítalískum varð-rökkum.
Ólafur, Vilhjámur og hinir sjálfstæðismennirnir sem stóðu að þessu ráðhúsráni hafa áunnið sér ævarandi skömm. Ég ætla rétt að vona að þeir fái aldrei að gleyma því.
Peðið sem hélt að það væri kóngur
Wednesday, January 23rd, 2008Ólafur F. Magnússon hefur sýnt af sér meira siðleysi og lágkúru en nokkurn óraði að hann væri fær um. Maður fær aulahroll af að horfa uppá þetta rugl í honum. Aumkunarvert. Fyrir hvað stendur effið annars?

Menntahrokinn og parísarklámið
Thursday, January 17th, 2008Hmmmm, jæja þá fer að líða að því að maður klári þessa blessuðu mastersgráðu. Nú þarf bara að líma sig við stólinn og klára verkefnið. Þýðingafræði er tiltölulega ung grein og spennandi (eða mér finnst hún allavega spennandi, enda er ég að læra hana) og eftir útskrift á ég eflaust eftir að verða hinn versti besserwisser í öllu sem tengist þýðingum. Tala eins og sá sem valdið hefur. Bókað mál.
Svo líður að því að maður fari og taki góða skorpu í höfuðborg Frakklands. Því er ég að hugsa um að koma bara öllu parísarkláminu frá núna strax, svo ég verði ekki endalaust röflandi um sögufræg kennileiti borgarinnar eins og sumir gera, til að láta alla vita af því að þeir hafi sko verið í París. Hér kemur það: Montmartre, Montparnasse, Champs Elysées, Arc de Triomphe, Boulevard des Capucins, Louvre, Notre Dame, Tour d’Eiffel, Tour d’Eiffel, Tour d’Eiffel! Ssseinneee….
Heima. ça veut dire chez soi
Saturday, January 12th, 2008Ein af þeim gjöfum sem komu uppúr mínum jólapökkum var dvd-diskurinn Heima, með Sigur Rós. Ég get ekki sagst vera annað en ánægður með það sem ég hef séð af diskinum fram að þessu, hef aðeins verið að glugga á þetta, en það er helst diskur 2 sem mér finnst góður - læf upptökurnar sem voru teknar upp víðs vegar um landið. Mér sýnist strákunum hafa tekist ágætlega að fara fínlegan milliveg - að hylla sitt eigið (h)land og þjóð, sem og að gera svolítið landkynningarmyndband. Nú get ég allavega sýnt Aurelie myndefni af Íslendingum og íslensku landslagi. Gott þetta strákar, þið eruð að standa ykkur.