Negrastrákarnir

Jæja, ég er búinn að fylgjast með fjaðrafokinu útaf þessari alræmdu bók úr fjarlægð, og nú er ég að hugsa um að segja það sem mér finnst um þessa endurútgáfu: mér finnst hún heimskuleg.

Það eru til kynstrin öll af frábærum íslenskum bókum frá fyrri áratugum sem eru algjörlega ófáanleg í bókabúðum. Mikið hefði ég orðið glaður ef t.d. Bréf til Láru hefði verið endurútgefin fyrir jólin. En nei, það urðu að vera fokking Tíu litlir negrastrákar.

3 Responses to “Negrastrákarnir”

  1. Steinunn says:

    Já og svo finnst mér að einhver ætti að taka sig til og endurútgefa kommúnistaávarpið, það er alveg ófáanlegt, er m.a.s. búin að fara í nokkrar fornbókabúðir og finn það hvergi.

  2. Elías says:

    Leitin að Ljúdmílu fögru, það er falleg barnabók sem mætti endurútgefa. Heimskringla gaf út mikið af flottum barnabókum sem hafa ekki sést í mannsaldur.

    Svo eru múmínálfarnir farnir að vera ófáanlegir, sérstaklega Halastjarnan og Pípuhattur galdrakarlsins.

  3. Elías says:

    Já, og svo til að halda nafni Muggs á lofti, þá þarf að endurútgefa Þjóðsögur Einars Ólafs Sveinssonar, en það er úrval af bestu þjóðsögum Jóns Árnasonar færðar til nútímastafsetningar eftirstríðsáranna og hnökrar á málfari leiðréttir. Myndskreytingar eftir marga bestu listamenn Íslands, en þó var Muggur mest áberandi.