Þá er ég búinn að prófa að vera sundlaugarvörður. Ekki þurfti ég að bjarga neinum frá drukknun, en ég fékk hins vegar að losa um eitt stíflað klósett, sem vissulega var eftirminnileg reynsla.
Archive for August, 2007
Ný reynsla er ávallt hressandi
Friday, August 24th, 2007Jeg ock min gyllene stol
Sunday, August 19th, 2007Hver þarf félagslíf eða líkamsheilsu þegar youtube er fyrir hendi?
Og svo vil ég þakka þeim kærlega sem mættu niður á Austurvöll milli kl 22 og 23 í gær að hlusta á ljóðaflutning, sem og þeim sem voru með mér á djamminu í nótt. Hella fun, eins og þeir segja í San Francisco.
Sundlaugarblús
Thursday, August 16th, 2007Hér er lítið ljóð sem ég kalla Sundlaugarblús:
Laugin, hún er tuttugu og fimm metrar
að lengd
og þrír komma sex metrar
að dýpt
(í djúpa endanum)
Í hana sækir alls konar fólk
eldri borgarar sem stunda hugleiðslu
karlar með stórar bumbur
krakkar sem stinga sér
af stóra brettinu - vííííí
og húsmæður með ungabörn
en því miður
þá koma engar gellur í sund
þegar ég er á vakt.
Takk fyrir, takk takk, ljóðið er búið núna. Og meðal annarra orða, þá verður ljóðalestur í boði Nykurs á menningarnótt! Je-i-jei!
Austurvöllur milli kl. 22 og 23. Ljóðið hér að ofan mun ekki verða flutt þar. Allir velkomnir nema Þröstur Helgason.
Auðmýkt
Monday, August 13th, 2007Ég tileinka mér sífellt meiri auðmýkt. Enda eru allir miklir andans menn auðmjúkir.