Spliff, donk og gengja

Í Fóstbræðraþáttunum sálugu lék Sigurjón Kjartansson dyrasölumann sem gekk hús úr húsi og bauð spliff, donk og gengju. Undrun mín var ekki lítil þegar ég frétti að það er víst í alvörunni til eitthvað sem heitir gengja. Já, svona er maður mikill kúristi og kverúlant.

3 Responses to “Spliff, donk og gengja”

  1. Magnús says:

    Spliff og donk eru líka til og ég á þetta allt. Ótrúlegt hvað þetta er praktískt til ýmislegs heimilisbrúks.

  2. jújú, til að mæla gengjur notar maður gengjumát og til að búa til gengjur notar maður annað hvort snittbakka eða snitttappa.

  3. Arngrímur says:

    Þeir kórónuðu svo meistaraverkið með því að selja fyrirbærið í Hagkaupum. Þannig að þótt spliff, donk og gengjur hefðu ekki verið til áður, þá væru þær svo sannarlega til núna.