Archive for June, 2007

Spurt er

Sunday, June 24th, 2007

Er smekklegt að tala um fyrirtækið Spöl, sem sér um Hvalfjarðargöngin, í þágufalli? Þá sitjum við nefnilega uppi með “speli” sem hljómar eins og blanda af orðunum “sprelli” og “deli”. Vonandi vinnur enginn hjá þeim sem heitir Hrafnkell eða Þorkell. “Hæ, ég heiti Keli og vinn hjá Speli”.

Til hamingju með daginn

Sunday, June 17th, 2007

Gleðilegan Bloomsdag í gær.

Var næstum búinn að gleyma því.

fáið ykkur menningu

Saturday, June 9th, 2007

Já heyriði það, troðið í ykkur menningu. Þambið hana eins og Rabelais, ölvið ykkur eins og Baudelaire.

Hér er iPoems kerfi 57 Productions með alveg glás af mp3 skrám af enskumælandi samtímaskáldum, flytjandi eigin ljóð. Smellið bara á iPoems.

Hér er svo PENNsound vefurinn, fyrir þá sem ekki hafa kynnt sér hann ennþá. Fleiri mp3 skrár.

Hér er svo minn maður í skáldsögunum, Cormac McCarthy.

Og hér er minn maður í ljóðunum, írska nördið Paul Muldoon.

Og hér er eru fleiri tenglar á minn mann í leikhúsinu, Tom Stoppard. Annars er The Modern Word ágæt síða í sjálfri sér.