Þetta langar mig í.
Archive for May, 2007
Já takk!
Monday, May 28th, 2007Elías Mar kvaddur
Wednesday, May 23rd, 2007Elías Mar rithöfundur er látinn. Hann sendi frá sér skáldsögur, smásögur, þýðingar og ljóð, þó að stóran hluta ævi sinnar hafi hann aðallega lesið yfir texta eftir aðra, t.d. var hann prófarkarlesari Halldórs Laxness og las yfir prófarkir á Þjóðviljanum í mörg ár. Ég á tvenn ljóðasöfn eftir hann, og varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá hann til að árita þær þegar við pabbi fórum og heimsóttum hann í fyrrahaust, drukkum með honum bjór og spjölluðum. Hann hafði svo frábæra rödd og hafði frá svo mörgu að segja. Ég hitti hann ekki nema í þetta eina skipti og harma það mikið. Ég var alltaf á leiðinni til hans aftur en alltaf frestaðist það, alltaf fannst manni vera svo mikið að gera. Hann sagði í þetta eina skipti að hann nennti ekki að fara að deyja alveg strax. Ég vildi að ég hefði getað kynnst þessum merkilega manni betur. Mæli með skáldsögunni Vögguvísu og ljóðasafninu Mararbárum fyrir þá sem vilja kynna sér verk hans.
Svavar Knút á þing!
Wednesday, May 9th, 2007‘Nuff said.