Ókei, sem frambjóðandi langar mig að lýsa því yfir að mér finnst Frjálslyndir vera alveg einstaklega glataðir. Ætlaði nú að reyna að sitja svolítið á mér með þetta, en fjandinn hafi það, þessi málflutningur er ótækur. Þessi ömurlega heilsíðuauglýsing þeirra hefur nú verið birt í tvígang, og svo varð mér það á að lesa blogg Viðars Guðjohnssen sem er í frambjóðandi Frjálslyndra (í 5. sæti, hvorki meira né minna) og mér er öllum lokið. Frjálslyndi flokkurinn virðist staðráðinn í að gera sjálfan sig alveg óalandi, óferjandi og óþolandi. Hann um það. Það munu verða aðrir valkostir eftir kosningar.
Frjálslyndi flokkurinn er hreinasta andstyggð
Á kosningakvöldi frjálslyndra verður boðið upp á kebab og pulsur. Ég fæ hroll við tilhugsunina.
En það er óhugnanlegt!