Archive for March, 2007

Rokk og ról

Tuesday, March 27th, 2007


Ég drattaðist loksins með bókina mína í nokkrar búðir, og hún lítur nokkurn veginn svona út.

Hreyfing Íslands

Sunday, March 25th, 2007

Æi ég veit það ekki. Jakob Frímann Magnússon er einn af forkólfunum í þessu apparati. Aðspurður um muninn á ÍH og VG sagði hann að ÍH væri á móti netlögreglu.

Það er nefnilega það.

Jæja, fyrst hann vill fara í þennan pakka…

Jakob Frímann fékk einhverja háðuglegustu útreið allra tíma í prófkjöri Samfylkingarinnar hérna um árið en hann er greinilega ekki af baki dottinn. Þar kom hann eftirminnilega út úr skápnum sem lýðskrumari þegar hann birti þessar flennistóru heilsíðuauglýsingar með stuðningsmannalistanum sem hann hafði fengið alla félaga sína í poppbransanum til að skrifa á. En hann vill greinilega ólmur láta að sér kveða í stjórmálum sem svona hvítvíns- og snyttupólitíkus og ef hann kemst á þing þá getur hann representerað hvítvíns- og snyttuneytendur um allt land. Íslandshreyfingunni er lítill akkur í að hafa hann í sínum röðum, sérstaklega ekki sem hluta af flokksforystunni. Plís, ekki kjósa svona sjálfumglaða spjátrunga til áhrifa.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla. Langt orð. Endilega drífið ykkur og kjósið, lömbin mín, ef þið sjáið fram á að vera erlendis í maí.

Vertu Zero

Friday, March 23rd, 2007

Maður er minntur á nýja kókið frá Vífilfelli hvert sem maður fer, greinilega einhverjar geðveikar summur að fara í markaðssetninguna á þessu. Alltaf svekkjandi að borga mikið fyrir eitthvað sem er lélegt og illa ígrundað. Að kaupa köttinn í sekknum. Ég ætla a.m.k. ekki að kaupa eina einustu flösku af þessum drykk enda þótt ég sé sólginn í kók. Mér finnst þessi auglýsingaherferð bara svo ömurleg. Versta slóganið hlýtur að vera “Hvað með konur með zero skoðanir”, en “Hvað með tvær kærustur og zero afbrýðisemi” fylgir fast á hælana.

Mér, sem ungum karlmanni, hluta af markhópnum sem herferðin á að ná til, finnst nefnilega að Vífilfell sé að koma fram við mig eins og hálfvita. Eins og zero. Reyna að höfða til lægstu hvata minna í þeim tilgangi að selja mér vöruna sína. Ég veit svosem að þetta er það sem auglýsingar ganga næstum alltaf út á, en í þessu tilfelli er bara full mikil óskammfeilni á ferðinni. Ég er hálf móðgaður og ég sé ekki ástæðu til að leiða þetta bara hjá mér.

Ræðukóngurinn

Friday, March 16th, 2007

Það kom lítið á óvart að Steingrímur J. skyldi vera valinn besti ræðumaðurinn á þingi eftir eldhúsdagsumræðurnar. Maðurinn er ótrúlegur. Ég hef aldrei séð eða heyrt hann fipast. Og eiginlega sé ég ekki að neinn á þingi komist með tærnar þar sem hann hefur hælana. Spái því hins vegar að þegar Freyr Rögnvaldsson kunningi minn kemst á þing þá muni hann veita foringjanum harða samkeppni á mælskusviðinu.

Skítamórall?

Friday, March 9th, 2007

Í fréttunum í gær var m.a. verið að fjalla um afnám launaleyndar, og formaður samtaka atvinnulífsins er víst harður á móti því. Eftir því sem ég kemst næst voru rök hans þau að afnám launaleyndar myndi valda svo slæmum móral á vinnustöðum landsins að það gengi bara alls ekki. Fyrirtæki myndu veslast upp og afköst þeirra snarminnka. Starfsfólk þess myndi fara að líta á hvort annað sem andstæðinga.

Ekki finnast mér þetta sannfærandi rök. Lái mér hver sem vill.

Útgáfufögnuður

Monday, March 5th, 2007

utgafan.jpg

Asnalegt

Thursday, March 1st, 2007

Eftir að Steingrímur J. tjáði sig klúðurslega um netsíur í Silfrinu um daginn hafa ansi margir kratar látið beinlínis asnalega í bloggheimum. Eins og krata er siður stökkva þeir á svona afsakanir til að mála skrattann á vegginn og þyrla upp ryki. Þeir vilja gjarnan meina að Steingrímur hafi verið að tala um eitthvað Stóra bróðurs apparat sem myndi fara í gegnum tölvupósta fólks og svo framvegis. Eins og Elli hefur bent á þá eru þessir tilteknu kratar eiginlega bara úti að skíta og ég er ekki ánægður með þá fyrir að geta ekki verið málefnalegri en þetta. Sérstaklega eftir að Steingrímur er búinn að gera betur grein fyrir ummælum sínum í blöðum. Ég vona bara að kratar ætli ekki að vera í þessum gír fram að kosningum, en mig grunar samt að það ætli þeir einmitt að vera.