Ég er jafn undrandi og hver annar yfir þessu tali í formanninum um netlögreglu. Sérstaklega af því að ég er nýbúinn að sitja landsfund VG og þar varð ég ekki var við neina umræðu um þetta málefni. Úr því að hann gekk með þessa hugmynd þá hefði ég nú gjarnan viljað að hann biði með að viðra hana í … svona 90 daga eða svo. Sjáum hvað setur.
Archive for February, 2007
Æi Steingrímur
Tuesday, February 27th, 2007Ödipusinn 2007
Wednesday, February 21st, 2007Nú er tími hinna stóru verðlaunaafhendinga runninn upp. Íslensku bókmenntaverðlaunin og Grammy-verðlaunin hafa verið afhent og Óskarsverðlaunin eru handan við hornið. Af þessu tilefni hef ég ákveðið að fara af stað með ný verðlaun: Ödipusinn, sjá færslu hér frá því um daginn. Dómnefnd verður skipuð af mér og Jóni Erni Loðmfjörð (af því að hann er æðsti dómstóll um hvað er töff og hvað ekki) , og sá sem fær flestar tilnefningar mun hljóta litla gullhjúpaða styttu af honum* auk upphefðarinnar sem fylgir nafnbótinni. Sjálfur tilnefni ég George W. Bush, að sjálfsögðu. Dembið tilnefningum inní kommentakerfið!
* Þetta er reyndar ekki satt.
Vinstrisinnaður gáfnamaður
Friday, February 16th, 2007Ég hef einu sinni á ævinni verið kallaður vinstrisinnaður gáfnamaður, eða “left-wing intellectual”. Það var í fyrrasumar. Fannst það bara svolítið gaman. Ef þið viljið einhvern tímann gleðja mig, þá getið þið strokið á mér egóinu með því að kalla mig vinstrisinnaðan gáfnamann.
Röskva og Satan
Tuesday, February 13th, 2007Ég held við getum svosem viðurkennt það núna þegar við erum búin að vinna, að við gerðum díl við djöfulinn. Já það er satt, Satan er í Röskvu. Já þetta er rétt, Hálistafólk. Þið sáuð í gegnum okkur. En nú er það of seint. Múahahahaha.
Þessum tengslum við myrkraöflin til staðfestingar þá dúkkaði Sataníska Biblían eftir Anton Sandor Lavey upp í kosningamiðstöðinni okkar (í alvöru). Ég hef nú tekið að mér að varðveita hana.
Ödipus
Tuesday, February 6th, 2007Um daginn spurði ég málsmetandi íslenskufræðing hvort að nafnorðið “moðerfokker” væri ekki orðið viðurkennt í málinu. Hann ráðlagði mér að segja bara “ödipus”. Eins og í “hvers konar ödipus er þessi gaur” eða “haltu kjafti ödipus”. En er það sannfærandi? Er það nógu töff?
Ég legg málið í dóm þjóðarinnar.
Stephen Fuchs
Sunday, February 4th, 2007…er einn af heppnum viðtakendum kosningablaðs Röskvu þetta árið. Hvernig er þetta borið fram, ef mér leyfist að spyrja?
Ekki bara snoppufriður…
Saturday, February 3rd, 2007Já, það er semsagt komin út eftir mig ljóðabók. Ég er freeekar stoltur. Hún heitir Oubliette og ég skal setja inn mynd af koverinu hérna um leið og Elli eða einhver sýnir mér hvernig á að gera svoleiðis. Ég þakka innilega öllum þeim sem mættu á andarungann í gær. Það er eiginlega eins gott að íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent í gær, því það þýddi að fjölmargir playerar úr bókmenntaheiminum voru í partíum einhvers staðar úti í bæ - við hefðum ekki getað tekið á móti fleira fólki, pleisið var troðfullt. Í Fréttablaðinu stóð ‘Ungskáld á Andarunganum’ og mynd af mér, sem mér finnst svolítið þversagnakennt. Það er ekki eins og ég sé einhver táningur, 25 ára gamall maðurinn. Nú eða Bjarney. Ekki er hún ungskáld.
En allavega, þá eru nú tveir stórir pappakassar fullir af ljóðabókum liggjandi á gólfinu í ganginum hjá mér. Endilega hjálpið mér að grynnka á þessu; 1500 kjall stykkið. Hjálpið mér að fjármagna bóhemlifnað minn.
Fyllirísbandalagið Nykur
Friday, February 2nd, 2007Æ æ æ, ég hef sama og ekkert sinnt því að ayglýsa þetta en betra seint en aldrei. Það verður semsagt upplestur úr nýútkomnum ljóðabókum á Litla ljóta andarunganum í kvöld kl 21 og frameftir. Allir velkomnir! Nema meinfýsið fólk. Ég þoli ekki meinfýsi. Hún er ógeð. En allt sæmilega hjartahlýtt fólk er eindregið hvatt til að láta sjá sig!
Já og helst að verða fullt. Nykur er nefnilega svoddan fyllirísbandalag.
Ég er hamstur
Thursday, February 1st, 2007Genginn er í garð sá tími ársins þegar stríðandi fylkingar námsmanna (eða þeirra fylkinga sem hafa aðfangadeild) bjóða stúdentum uppá gos og aðra drykki. Með öðrum orðum er kominn tími til að hamstra gos. Hamstrið því, hamstrið, eins og þið eigið lífið að leysa! Hamstrið sérstaklega Vökugosið. Farið svo og kjósið Röskvu.