Fyndið

http://nielsen.blog.is/blog/nielsen/entry/98888/

Fyrst þegar mér var sýnd þessi steypa varð ég dálítið pirraður yfir að vera bendlaður við kommúnisma. Svo áttaði ég mig á hvað þetta er fyndið. Það er eins og maðurinn sé að setja met í ógáfulegu innihaldi vs. magn texta. Hann mælir með bók sem hann hefur ekki lesið, hann rökstyður engan veginn hvernig VG er eins og gamlir kommúnistaflokkar, hann notar ‘hryllingur’ í fleirtölu o.s.frv. Og þetta er ritað af fullorðnum manni, 22 ára gömlum eins og þarna stendur. Æ, æ. Ef margir ungir frjálshyggjumenn eru eins og þessi misheppnaði gaur þá hef ég engar áhyggjur af baráttunni.

4 Responses to “Fyndið”

  1. Erlendur says:

    Þetta er snillingur

  2. Jón Örn says:

    Mér fannst þetta fallegt og varð því að kommenta á bloggið hans…

  3. Þórhildur says:

    Mig sundlar við þessa vitleysu í greyinu. Verður samt að athuga það Kári að hann er úr Garðabænum… mjög hugsanlega varanlegur skaði þar á ferðinni.

  4. Kári says:

    Já kannski getur hann ekki að þessu gert, vesalingurinn.