Ég eyddi laugardeginum í bústað í Biskupstungum og kom aftur í bæinn í gær. Þetta var svona vinnu- og skemmtiferð sem UVG stjórnin réðst í, svona til að skerpa áherslurnar fyrir landsfund, kosningar o.s.frv. Ég hafði náttúrlega lítið til málanna að leggja, enda er það aðallega mitt hlutverk að vera snoppufríður og bjarga útlitinu á félagsskapnum. En bústaðaferðir með skemmtilegu fólki eru snilld og algjört möst að fara í svoleiðis annað slagið. Svo þegar maður kemur aftur í borgina er sterkur leikur að fara og fá sér ís, það er alveg punkturinn yfir i-ið.
Archive for January, 2007
Bústaðarferð
Monday, January 29th, 2007Á næturvakt, 2. hluti
Thursday, January 18th, 2007Ég er í vinnunni.
Það sökkar.
Enda er ég búinn að segja upp.
Þá er ég búinn að prófa það að vera næturvörður.
Það starf bætist við lista ýmissra starfa sem ég hef unnið í gegnum tíðina, svo sem: verkamaður, bréfberi, hilluraðari, sendill, lagermaður, aðstoðarmaður í eldhúsi, herferðarstarfsmaður mannréttindasamtaka, og þjónn.
Allt þetta hef ég fílað afar takmarkað, nema mannréttindadjobbið, sem var fínt.
Enda hef ég setið á skólabekk undanfarna fjóra vetur.
Ég bind vonir við að það geri mér kleift að komast til metorða í samfélaginu. En um leið finnst mér það hæpið.
Fyndið
Tuesday, January 16th, 2007http://nielsen.blog.is/blog/nielsen/entry/98888/
Fyrst þegar mér var sýnd þessi steypa varð ég dálítið pirraður yfir að vera bendlaður við kommúnisma. Svo áttaði ég mig á hvað þetta er fyndið. Það er eins og maðurinn sé að setja met í ógáfulegu innihaldi vs. magn texta. Hann mælir með bók sem hann hefur ekki lesið, hann rökstyður engan veginn hvernig VG er eins og gamlir kommúnistaflokkar, hann notar ‘hryllingur’ í fleirtölu o.s.frv. Og þetta er ritað af fullorðnum manni, 22 ára gömlum eins og þarna stendur. Æ, æ. Ef margir ungir frjálshyggjumenn eru eins og þessi misheppnaði gaur þá hef ég engar áhyggjur af baráttunni.
Jæja
Tuesday, January 9th, 2007Nú er kominn tími til að segja jæja. Ef ég fæ ekki einkunnirnar mínar bráðum þá fer ég að gráta.
Ps. Það er nett hættulegt að fara að googla sjálfan sig af nætur-rælni. Sérstaklega með tilliti til allra þeirra bloggsíðna sem eru þarna úti.Og sérstaklega ef maður nennir ekki að láta neinn eiga eitthvað inni hjá sér eins og ég.
Á næturvakt
Tuesday, January 9th, 2007Samkvæmt Fréttablaðinu í dag þá er vinkona mín hún Scarlett Johansson sögð vera hjónadjöfull og hafa komið upp á milli Justin Timberlake og Cameron Diaz. Þessu á ég mjög bágt með að trúa og ég held að við öll sem þekkjum Scarlett getum borið vitni um að hún sé einstaklega ljúf og góð manneskja sem aldrei myndi gera svona nokkuð.
Sjúddirarírei og sjúddíraríra…
Nei ég er ekki fullur í vinnunni. Ég vildi bara að ég væri það.
Snoppufríður væskill
Saturday, January 6th, 2007Þannig er ég víst, í hnotskurn. Takk Freyr, mér finnst þú líka sætur.