Jólin, jólin

Gleðilega hátíð öllsömul sem lesið þetta. Ef þið senduð mér kort biðst ég velvirðingar á slugsahættinum í mér að hafa ekki goldið ykkur líkt með líku. Ég sendi engin kort. Þakka sömuleiðis kærlega fyrir gjafirnar sem ég fékk núna yfir afmæli og jól; nóg af bókum, gagnlegum hlutum í eldhúsið og gourmet-dóti allskonar. Þessi jól verða færð í annála sem kaffijólin þar sem mér hefur hlotnast grúví stöff eins og pressukanna, fallegt bollastell og sérmalað kaffi.

Comments are closed.