Forvalið er búið og það var mjög gaman í því. Flott fólk í efstu sætin og mér skilst að mér sjálfum hafi nú bara gengið nokkuð vel, svona miðað við að ég hagaði mér eins og fífl alla kosningabaráttuna. Guðrún Lilja fékk ljómandi góða kosningu í annað sætið. Ég óska henni til hamingju með það. Hins vegar vil ég segja, bara af því að ég þekki nákvæmlega ekki neitt til hennar né hennar starfa, að ég vona sannarlega að hún muni standa undir þessum mikla stuðning og sanna sig sem öflugur málsvari þessa göfuga flokks.
Annars er mjög einföld ástæða fyrir því að ég náði ekki fjórða sætinu: hún er sú að kvöldið fyrir kjördag þá lamdi ég talningarmanninn minn. Fyrirgefðu Jón!
####
Ég er fluttur aftur í bráðhuggulega íbúð að Laufásvegi 71, jarðhæð, og þangað er allt gott fólk ævinlega velkomið því mér þykir gaman að fá gesti. Nú GET ég líka boðið heim gestum, ólíkt herberginu á Urðarstígnum þar sem varla var pláss til að klóra sér. En úkraínska konan sem var leigusalinn minn á Urðarstígnum reyndist mér vel; hún lét mig afskiptalausan, var aldrei með leiðindi og skilaði tryggingunni minni. Það er meira en sagt verður um síðasta leigusala sem var Íslendingur, var með sífellt bögg út af því sem var ekki mér að kenna, spillti öllum heimilisfriði og stal tryggingunni minni.
Ég fékk nokkra stælta karlmenn, fíleflda og fagurlimaða, til að hjálpa skáldinu við burðinn, og var það unun á að líta. Ég þakka þeim hér aftur, þessum Herkúlesum.
####
Framsóknarmaðurinn og Selfyssingurinn Bjarni Harðarson fór mikinn í pistli í Blaðinu um daginn. Þar reifaði hann hvað Vinstri græn séu mikill öfgaflokkur sem hýsir dreggjar heimskommúnismans í sínum röðum og að VG sé öfgaflokkur sem haldi á lofti stefnu kúgunar og ofbeldis. Hann klykkir út með að segja að það sé líkast til eitthvað að uppeldinu á fólki sem gengur svona öfgaflokkum á hönd. Svona kjaftæði á það til að fara ansi mikið í taugarnar á mér. Hvað er að manninum? Er hann öfga-framsóknarmaður sem er að skíta í buxurnar af því að fyrrum kjósendur Framsóknar hafa snúið baki við þeirri úrkynjuðu flokksómynd og komið yfir í það heimbrigða og ferska afl sem VG er? Er hægt að taka einhverja pillu til að koma í veg fyrir að svona vitleysa pirri mann?