Gamlar Nykurbækur óskast

Nykur kom formlega upp úr tjörninni á ný um daginn með útgáfu Endurómunar upphafsins eftir Arngrím Vídalín. Svo er Gárungagap eftir Emil Hjörvar Petersen væntanleg í janúar. Fyrrnefndu bókina á ég auðvitað og þá síðarnefndu mun ég að sjálfsögðu fá, og svo á ég Uppstyttur sem Davíð A. Stefánsson sendi frá sér árið 2003. Svo er mín eigin bók, Oubliette, væntanleg með nýja árinu. Mig vantar því eftirfarandi Nykurbækur:

1. Ljóðasmygl og skáldarán, Andri Snær Magnason, 1995.
2. Blákaldur draumveruleiki, Björgvin Ívar, 1995.
3. Orð sem sigra heiminn, Davíð A. Stefánsson, 1996.
4. Litla gula hænan og síðasta kvöldmáltíðin, Björgvin Ívar, 1997.
5. Innrás liljanna, Bergsveinn Birgisson, 1997.
6. Ást á grimmum vetri, Sigtryggur Magnason, 1997.
7. Svarthol, Steinar Bragi, 1998.
8. Kveddu mig, Davíð A. Stefánsson, 1999.
9. Augnkúluvökvi, Steinar Bragi, 1999.
10. Bók í mannhafið, ritstjóri: Andri Snær Magnason, 2000.
11. Skál fyrir skammdeginu, Ófeigur Sigurðsson, 2001.
12. Eldfuglinn í ísskápnum, Haukur Davíð, 2002.

Ef einhver sem les þetta á eitthvað af þessum bókum hvet ég þann hinn sama að hafa samband við mig á kpo@hi.is eða í síma 864-5710, svo við getum talað bissness.

4 Responses to “Gamlar Nykurbækur óskast”

  1. Arngrímur says:

    Ljóðasmygl og skáldarán færðu á 990 krónur í næstu bókabúð, eða hjá Andra sjálfum.

    Steinar Bragi gæti verið viljugur til að gefa þér Svarthol ef hann er í virkilega góðu skapi.

    Davíð á a.m.k. fyrstu bókina en þú þyrftir að láta binda hana inn fyrir þig.

    Bók í mannhafið muntu hvergi finna nema á Landsbókasafni, en ef þú finnur hana annarsstaðar máttu ekki eiga hana ;)
    Held að Ófeigur eigi Skál fyrir skammdeginu á lager.

  2. Heimir Viðarsson says:

    Þessu er beint til þín, Kári, sem þátttakanda í forvali Vg 2.des næstkomandi:

    Kæri frambjóðandi.
    Munt þú koma til með að beita þér fyrir því að hjólreiðabrautir komist í vegalög, svo hjólreiðar verði raunhæfur samgöngukostur í þéttbýli?
    Kær kveðja
    Heimir Viðarsson
    heimirv@simnet.is

  3. Kári says:

    Það hlýtur að vera í samræmi við umhverfisáherlsur flokksins að hjólreiðasamgöngur verði raunhæfur ferðamáti svo ég mun að sjálfsögðu vilja stuðla að því. Bílatraffík í borginni er líka allt of mikil með tilheyrandi mengun og slysatíðni, því ætti flest skynsamt fólk að geta verið sammála.

  4. Sigtryggur M says:

    Sæll.

    Ég skal gefa þér eintak af Ást á grimmum vetri ef þú nennir að koma við hjá mér. Ég er í símaskránni.

    Með kveðju,

    sigtryggur m