Skip to content


Smjörpjakkar og klukkugerðarmenn

Hah! Hélduð þið að bloggið væri dautt og ég hefði fengið útrás fyrir fótboltaröflið í Mogganum (sjá boltatónlist á fimmtudag, boltabíó í dag og boltabækur væntanlega á mánudag)? En fótboltaumfjöllun á tveggja ára fresti er vitaskuld æðri tilgangur þessa bloggs - fyrir utan ferðasögurnar auðvitað (Mostar er alveg að koma) - og því er rétt að byrja á A-riðlinum fáeinum mínútum áður en flautað er til leiks.

Portúgalir vinna þennan riðil auðveldlega - og í kjölfarið á því klára þeir keppnina. Þeir hafa farið skrefinu nær í hverri Evrópukeppni (fjórðungsúrslit 96, undanúrslit 2000, úrslit 2004 og …), eru með sama þjálfara þriðja stórmótið í röð og komnir með hörkulið með fáa veikleika. Markvörðurinn getur vissulega verið vafasamur en vinnur allar vítakeppnir en aðalvandamál liðsins er að þeir eiga ekki almennilegan senter - en líklega væri best að leysa það með því að gera Ronaldo að senter, þeir eru með offramboð af góðum kantmönnum og um að gera að nota þá sem flesta. En lykillinn er einfaldlega smjörpjakkurinn Cristiano Ronaldo, jafn illa og mér er við að viðurkenna það þá er þessi gutti hans sir Alex að spila þannig þessi misserin að hann getur borið liðið á herðum sér alla leið.

Hin þrjú liðin eru ósköp svipuð að getu og því mun heimavöllurinn ráða úrslitum og koma Svissurum áfram, þótt þeir séu með óttalega leiðinlegt varnarlið. En best að flagga Kosovo-treflinum mínum til heiðurs Valon Behrami, eina Kosovo-mannsins í keppninni.
Líklega veita Tyrkirnir þeim mesta keppni um annað sætið, þeir eru vitaskuld töluvert betra lið og með snillingin Kahveci Nihat fremstan - en þeir eru bara fjandanum óstöðugri og hentar lið eins og Sviss óttalega illa. Svo eru það mínir menn í Tékklandi sem ég hef því miður nánast enga trú á. Ég vona að ég hafi kolrangt fyrir mér hérna, en á meðan þeir eru með mikinn þjálfarasnilling á bekknum, frábæran markmann og trausta vörn þá vantar þessa galdrakarla sem hafa verið helstu tromp liðsins undanfarin ár - því þeir hættu allir á sama tíma, Nedved, Poborsky, Smicer og Berger - og Rosicky, þeirra eini verðugi arftaki er eilíflega meiddur. Fyrir utan að Baros er á stanslausri niðurleið og Koller að komast á eftirlaun. Kannski fáum við eitthvað kraftaverk, máski grefur Brückner upp einhvern stórfenglegan leikstjórnanda frá afdölum Móravíu - en ég efast. Samt, óvænt símtal til Tékklands hlýtur að vera merki um betri tíma …

Posted in Uncategorized.

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.