Doddi ræður sér ekki fyrir kæti út af fótboltavæðingu þessarar síðu, enda alræmd fótboltabulla og fyrrum unglingalandsliðsmaður. Þess vegna var kominn tími til þess að tileinka honum eina fótboltafærslu, já og auðvitað öllu hinu bókmenntapakkinu sem skilur að fótbolti er æðsta birtingarmynd bókmennta, sbr. forsíðu síðustu Lesbókar.
En áfram með spánna … Hinn svokallaði dauðariðill er eiginlega full fyrirsjáanlegur fyrir nafngiftina - það er ansi erfitt að sjá eitthvað koma í veg fyrir að Frakkar og Ítalir komist áfram. Rúmenar eru fínt stemmningslið, en þeir Adrian Mutu og Christian Chivu eru báðir tveimur klössum betri en samherjar þeirra og þeir tveir þurfa báðir að eiga stórkostlega leiki til að leggja stórveldin tvö. Svo eru það Hollendingar sem eru spurningamerki að venju. Þeir eru búnir að vera í óstuði undanfarin tvö ár, og raunar eru ein átta ár síðan Hollendingar spiluðu síðast gamla góða Hollendingaboltann í heilt mót, eftir á að hyggja er eins og tapið í vítakeppni fyrir Ítölum í EM 2000 hafi verið síðasti leikur gamla góða Hollands. En það hafa verið smá batamerki í nokkrum vináttuleikjum fyrir mót, það er smá von að þetta sé að smella, en ég efast um að það dugi. Van Der Saar er tekinn að reskjast í markinu og vörnin er svo götótt að Johnny Heitinga telst hennar skásti maður. Svo eiga þeir enga almennilega varnarsinnaða miðjumenn, en eins og venjulega er ofgnótt af leikstjórnendum/kantmönnum og fínir framherjar - en allir eru þeir þó óþarflega óútreiknanlegir og meiðslagjarnir. En ef Arjen Robben, Rafael van Der Vaart, Wesley Sneijder og Robin van Persie verða allir heilir og í stuði gætu Hollendingar komist áfram - en það er ekkert sérstaklega líklegt. Svo er spurning hvort Ruud van lyndi við Marco van út keppina, það er óvíst hvort Huntelaar sé tilbúinn til þess að leysa hann af hólmi strax. Eina sem gefur manni von er hjátrúin - það eru jú 20 ár síðan Marco van rústaði Evrópumótinu - gæti hann gert það aftur af hliðarlínunni?
En þá eru það Frakkar og Ítalir. Frakkar ættu að vinna riðilinn, aðallega út af því að þeir hafa, þrátt fyrir að hafa tapað vítakeppninni á HM, ansi gott tak á Ítölunum. Vandamál Frakkanna er kannski helst það að ólíkt Ítölum, þar sem Nesta og Totti hættu með landsliðinu alltof snemma, þá virðast Frakkar helst ekki hætta með landsliðinu á meðan þeir geta reymað takkaskóna á sig hjálparlaust - og það þýðir að oft á tíðum er ein eða tvær risaeðlur í liðinu sem enginn kann við að setja á bekkinn. Ég tek til dæmis fram að Patrick Vieira er einn af mínum uppáhaldsleikmönnum og ég tel Lilian Thuram og Claude Makelele með bestu leikmönnum heims síðasta áratuginn - en allir eru þeir farnir að dala hættulega mikið, en halda samt byrjunarliðssæti svo framarlega sem þeir eru heilir. Á meðan kemst leikmaður á borð við Mathieu Flamini ekki í hópinn. Hins vegar virðist Ribery tilbúinn til þess að taka við af Zidane sem skapari liðsins, og hann er öllu sneggri en gamli meistarinn sem gefur liðinu nýja vídd - og þá er Karin Benzema sjóðheitur. En ég hef lúmskan grun um að stjarna liðsins í keppninni verði Henry. Hann átti vissulega arfaslakt tímabil hjá Barca - en hann var að koma upp síðustu vikur tímabilsins, sem gagnaðist Börsungum ekkert, enda þeir úr leik, en gæti verið guðsgjöf til Frakka. Sem ég hef grunaða um að tapa öðrum úrslitaleiknum í röð, núna fyrir Portúgölum.
Ítalir eiga hins vegar við afskaplega óvenjulegt vandamál að stríða, þeirra stærsti veikleiki er nefnilega vörnin. Ef Nesta hefði ekki hætt og Cannovaro ekki meiðst væri hún ein sú sterkasta í keppninni, en Materazzi og Andrea Barzagli eru ekki að fara að stoppa sterkustu lið álfunnar. Hins vegar koma Luca Toni og Alessandro Del Piero báðir sjóðheitir inní mótið og Antonio Di Natale virðist spila eins og engill í hvert skipti sem hann fer í landsliðstreyjuna, þannig að aldrei þessu vant þurfa þeir fyrst og fremst að treysta á sóknina. Sérstaklega ef Buffon meiðist, því sjaldan hafa Ítalir haft lélegri varamarkmenn.
Þannig að; Frakkar í úrslitaleikinn, Ítalir stoppa í fjórðungsúrslitum og Hollendingar rétt merja Rúmena í baráttunni um þriðja sætið.
Archives
- June 2008
- May 2008
- April 2008
- March 2008
- February 2008
- January 2008
- December 2007
- November 2007
- October 2007
- September 2007
- August 2007
- July 2007
- June 2007
- May 2007
- April 2007
- March 2007
- February 2007
- January 2007
- December 2006
- November 2006
- October 2006
- September 2006
- August 2006
- July 2006
- June 2006
- May 2006
- April 2006
- March 2006
- February 2006
- January 2006
- December 2005
- November 2005
- October 2005
0 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.