Skip to content


Þýska stálið og króatísku galdrakarlarnir

Jahérna, Brückner tókst máski ekki að grafa upp leikstjórnanda en hann gróf upp nautheppinn senter frá afdölum Móravíu - og það gæti vel dugað þeim þótt Tyrkirnir verði erfiðir.
En B-riðillinn byrjar í dag og þar fáum við að sjá Austurríki, eitthvert lélegasta lið sem nokkurn tímann hefur keppt á stórmóti. Og jafn ómarktækur og heimslisti FIFA er þá getur bara ekki verið góðs viti að vera sjö sætum fyrir neðan Ísland á þeim lista. Þannig að þetta er aðallega spurning hvort Austurríkismenn nái að kreista eitt stig fyrir grís út úr einhverjum leiknum og sleppa við mjög stór töp, en vonir heimaþjóðanna um að komast áfram urðu mjög líklega að engu í gær, Austurríki hefur aldrei átt neina von með sjálfan Emanuel Pogatetz (hann kemst alveg stundum í liðið hjá Middlesbrough) sem stærstu stjörnuna. Sem kemur ekki á óvart þegar ég hugsa tíu ár aftur í tímann, í starfsmannaboltann í Sölden, sem samanstóð af fyrrum Júgóslövum, Íslendingum, Spánverja og meira að segja Ástrala - en það var bara einn heimamaður sem treysti sér með, þeir geta líka bara staðið í lappirnar á skíðum.
Þannig að það er eiginlega spurning hvort baráttan í þessum riðli standi á milli Þjóðverja og Króata um fyrsta sætið - og þar með nokkuð öruggt sæti í undanúrslitum þar sem sigurliðið sleppur við Portúgal - eða hvort þetta snúist upp í baráttu um annað sætið á milli Króata og Pólverja. Ég hallast eiginlega að því fyrrnefnda. Líklega taka Þjóðverjar svo riðilinn naumlega, Ballack er kominn í ham og þeir eru með afbragðssentera - það mun ekki reyna að ráði á ryðgaðan Lehmann í markinu strax. Króatar eru hins vegar með stórskemmtilegt lið sem vantar almennilegan senter, í rauninni eru þeir ekki ólíkir Portúgölunum - eða bara Tékkum áður en þeir misstu alla galdrakarlana, en þjálfarinn Bilic kallar einmitt miðjumannasveit sína galdrakarlana þrjá. Og þeir gætu alveg galdrað Króata alla leið, ef það er einhver líklegur spútnik á þessu móti eru það Króatar - og svo er Slaven Bilic líka barasta mesti töffarinn sem situr á bekknum á þessu móti.
Pólverjar spiluðu vissulega fantavel í forkeppninni og virðast fjandanum erfiðari viðureignar og öll þjóðin virðist ástfanginn af hollenska hrukkudýrinu Leo Beenhakker, en hópurin er bara ekki sterkari en svo að það kæmist máski einn Pólverjanna í byrjunarliðið hjá Króötum - og enginn hjá Þjóðverjum.

Posted in Uncategorized.

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.