Ég kaupi miða í rútuna til Mostar og hef kortér til stefnu, ég er glorsoltinn og kaupi því vafasaman hamborgara í sjoppunni - og áður en ég hef svo mikið sem sest niður og byrjað að missa niður mylsnu hafa fuglarnir hópast að mér. Ég nýt vitaskuld athyglinnar og bý mér til smá bíó með matnum með því að henda brauðbitum af borgaranum reglulega til hópsins. Þetta eru ýmist dúfur og einhvers konar snjótitlingar - og alltaf eru snjótitlingarnir sneggri til. Dúfurnar eru vissulega mun stærri en miklu þunglamalegri - og jafnvel þegar ein þeirra nær brauðbita tekur einn smáfuglinn hana á kraftinum og rífur brauðið af henni - og ég get ekki annað en hugsað; hvernig í ósköpunum stendur á því að þessir fuglar eru ekki útdauðir? Þeir eiga ekki séns í ræfils smáfuglana, hvað þá hættulegri andstæðinga.
Archives
- June 2008
- May 2008
- April 2008
- March 2008
- February 2008
- January 2008
- December 2007
- November 2007
- October 2007
- September 2007
- August 2007
- July 2007
- June 2007
- May 2007
- April 2007
- March 2007
- February 2007
- January 2007
- December 2006
- November 2006
- October 2006
- September 2006
- August 2006
- July 2006
- June 2006
- May 2006
- April 2006
- March 2006
- February 2006
- January 2006
- December 2005
- November 2005
- October 2005
0 Responses
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.